Ferill 332. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 423  —  332. mál.
Stjórnartillaga.



Tillaga til þingsályktunar


um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur), nr. 243/2025 og nr. 88/2026 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) og nr. 226/2026 um breytingu á bókun 26 um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar við EES-samninginn.


Frá utanríkisráðherra.



    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn og fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2121 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar breytingar, samruna og skiptingar yfir landamæri.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða skýrslugjöf um skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2026 frá 20. mars 2026 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2175 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska bankaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1095/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglugerð (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða og reglugerð (ESB) 2015/847 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna.
                  b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2176 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1092/2010 um þjóðhagsvarúðareftirlit með fjármálakerfinu á sviði Evrópusambandsins og um stofnun Evrópska kerfisáhætturáðsins.
                  c.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2177 frá 18. desember 2019 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka.
     4.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226/2026 frá 10. júlí 2026 um breytingu á bókun 26 um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar við EES-samninginn og fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 734/2013 frá 22. júlí 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans,
                  b.      Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 frá 13. júlí 2015 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding) sem fellir úr gildi reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999.

Greinargerð.

1. Inngangur.
    Með þingsályktunartillögu þessari er leitað heimildar Alþingis til staðfestingar á fjórum ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar (fskj. I–XI).

2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2025 fellir inn í EES-samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2121 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar breytingar, samruna og skiptingar yfir landamæri.
    Með tilskipun (ESB) 2019/2121 eru gerðar breytingar á reglum tilskipunar (ESB) 2017/1132 um millilandasamruna og settar reglur um millilandaskiptingu félaga og um breytingu í kjölfar flutninga félaga yfir landamæri. Reglurnar eru settar með það að markmiði að bæta virkni innri markaðarins fyrir fyrirtæki og auðvelda þeim að nýta staðfesturéttinn.
    Tilskipunin felur m.a. í sér reglur er varða millilandasamruna, millilandaskiptingu og flutninga félaga yfir landamæri, um skýrslu framkvæmdastjórnar og stjórnar til hluthafa og starfsmanna, skýrslu óháðs sérfræðings, samþykki hluthafafundar, vernd hagsmuna hluthafa og lánveitenda og upplýsingagjöf. Breytingar sem varða reglur um millilandasamruna varða m.a. skilyrði fyrir samruna, skráningu, vottorð, samrunaáætlanir og athugun á lögmæti samruna yfir landamæri. Þá fela nýjar reglur um millilandaskiptingu félaga og um breytingu í kjölfar flutninga félaga yfir landamæri í sér ákvæði á sömu leið og þær sem varða millilandasamruna félaga, svo sem reglur um skiptingaráætlun, skráningu á og vottorð fyrir skiptingu eða breytingum/flutningum, afleiðingar millilandaskiptingar eða breytinga/flutninga og athugun á lögmæti þeirra. Þá eru settar reglur um að félag sem breytir eða flytur skráða skrifstofu, yfirstjórn eða höfuðstöðvar úr einu aðildarríki til annars aðildarríkis falli þá undir lög síðarnefnda ríkisins.
    Ekki eru gerðar aðlaganir í ákvörðun nr. 85/2025 við upptöku tilskipunarinnar í EES-samninginn. Upptaka gerðarinnar í samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á breytingar á hlutafélagalögum, nr. 2/1995, og einkahlutafélagalögum, nr. 138/1994. Atvinnuvegaráðherra mun leggja fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Fjárhagsleg áhrif á ríkissjóð, aðra opinbera aðila eða einkaaðila verða ekki teljandi. Tilskipunin hefur í för með sér nýtt verkefni hjá Skattinum, sem starfrækir fyrirtækjaskrá, sem er millilandaumbreyting (flutningur) félaga. Á þessu stigi er ekki gert ráð fyrir að um mörg eða umfangsmikil verkefni verði að ræða sem hafi áhrif á starfsemi fyrirtækjaskrár. Tilskipunin kallar einnig á breytingar í framkvæmd verkefna Skattsins sem lúta að millilandasamruna og millilandaskiptingu.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og tilskipunin kynnt nefndinni sérstaklega.

3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2025 fellir inn í EES-samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða skýrslugjöf um skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf.
    Með reglugerðinni er komið á samræmdum kröfum fyrir útgefendur sem vilja nota valfrjálsu auðkenninguna „evrópsk græn skuldabréf“ (EuGB) fyrir skuldabréf sín sem gerð eru aðgengileg fjárfestum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Samræmdar kröfur reglugerðarinnar snúa einkum að fjárfestingum, þ.e. sjálfbærnitengdum skilyrðum um notkun ágóða af evrópskum grænum skuldabréfum, upplýsingagjöf (stöðluð sniðmát) og ytri úttektaraðilum sem skulu vera skráðir hjá Evrópsku verðbréfamarkaðseftirlitsstofnuninni (ESMA). Talið er að áhrif reglugerðarinnar á fjármálamarkaðinn verði jákvæð þar sem samræmdar kröfur og auðkenning á grænum skuldabréfum eru til þess fallin að auka seljanleika slíkra bréfa. Ekki hefur verið lagt mat á það hversu umfangsmikil útgáfa grænna skuldabréfa verður í fyrirsjáanlegri framtíð hér á landi.
    Ákvörðun nr. 243/2025 felur í sér aðlaganir á efni reglugerðarinnar sem stuðla að samræmi við tveggja stoða fyrirkomulag EES-samningsins og um hlutverk Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) gagnvart ytri úttektaraðilum grænna skuldabréfa með staðfestu í EFTA-ríkjunum innan EES. Jafnframt kemur fram að tilvísanir í gerðinni til Evrópudómstólsins merki í tilviki EFTA-ríkjanna innan EES tilvísun til EFTA-dómstólsins og að EFTA-ríkin innan EES skuli miða við eigin landslög við skilgreiningu á ósamvinnuþýðum skattalögsögum en taka fullt tillit til lista Evrópusambandsins yfir slík ríki. En ákvörðuninni fylgir jafnframt sérstök yfirlýsing EFTA-ríkjanna um að upptakan sé með fyrirvara um gildissvið EES-samningsins gagnvart ríkjum utan EES.
    Upptaka fyrrgreindrar reglugerðar í EES-samninginn og innleiðing hennar hér á landi kallar á lagabreytingar. Fjármála- og efnahagsráðherra áformar að leggja fram frumvarp til nýrra heildarlaga um græn skuldabréf í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Ekki er gert ráð fyrir breytingum á tekjum eða útgjöldum ríkissjóðs. Græn skuldabréfaútgáfa ríkisins er á grundvelli sjálfbærniramma sem taka á mið af stöðlum og markaðsvenjum á hverjum tíma. Fjármálaeftirlit Seðlabanka Íslands er í stakk búið til að takast á við eftirlit með framkvæmd fyrirhugaðra laga.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd um upptöku tilskipunarinnar í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerðu þær ekki athugasemdir við upptöku gerðarinnar í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin og tilskipunin kynnt nefndinni sérstaklega.

4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2026 frá 20. mars 2026 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2026 fellir inn í EES-samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2175 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska bankaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1095/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglugerð (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða og reglugerð (ESB) 2015/847 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna.
     b.      Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2176 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1092/2010 um þjóðhagsvarúðareftirlit með fjármálakerfinu á sviði Evrópusambandsins og um stofnun Evrópska kerfisáhætturáðsins.
     c.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2177 frá 18. desember 2019 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka.
    Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2175 felur í sér breytingar sem hafa það að markmiði að stuðla að skilvirkara og stöðugra eftirliti með fjármálamörkuðum á EES. Gerðar eru breytingar á stjórnskipulagi evrópsku eftirlitsstofnananna á fjármálamarkaði er varða m.a. hlutverk og skipan formanna í stjórnum þeirra, ráðstafanir vegna hagsmunaárekstra innan stjórna þeirra og meðferð mála um brot á löggjöf Evrópusambandsins (ESB). Þá fá stofnanirnar auknar heimildir til aðgangs að upplýsingum frá lögbærum yfirvöldum og til að kalla eftir gögnum frá markaðsaðilum. Ferli við lausn deilumála á milli lögbærra yfirvalda er gert skýrara, þar á meðal í hvaða tilvikum, á hvaða tímapunkti og eftir hvaða leiðum skuli farið þegar óskað er eftir aðstoð evrópsku eftirlitsstofnananna við lausn deilumála.
    Breytingarnar fela einnig í sér að Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin (ESMA) fari með beint eftirlit með gagnaþjónustuveitendum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga og beint eftirlit með stjórnendum mjög mikilvægra fjárhagslegra viðmiðana og stjórnendum fjárhagslegra viðmiðana frá þriðju ríkjum samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/1011.
    Samsetning Evrópska kerfisáhætturáðsins (ESRB) tekur einnig breytingum í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2176 en formaður eftirlitsnefndar Evrópska seðlabankans og formaður sameiginlegu skilastjórnarinnar fá sæti án atkvæðisréttar. Þá öðlast EFTA-ríkin innan EES fulla aðild að ráðinu án atkvæðisréttar með sambærilegum hætti og á við hjá hinum eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði.
    Tilskipun (ESB) 2019/2177 kveður á um breytingar á þremur tilskipunum sem tengdar eru breytingunum sem gerðar eru með reglugerð (ESB) 2019/2175 nefnd hér að ofan, þ.e.a.s. tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og tilskipun 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka. Einkum vegna tilfærslu á beinu eftirliti með gagnaþjónustuveitendum frá innlendum eftirlitsaðilum til ESMA. Aðrar breytingar eru minni háttar og varða m.a. samstarf og upplýsingaskipti eftirlitsaðila á milli og við Evrópsku vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunina (EIOPA). Nefna má að kveðið er á um starfsemi samstarfshópa eftirlitsstjórnvalda til að efla upplýsingaskipti og bæta samstarf ef vátryggingafélag hyggst stunda starfsemi yfir landamæri og talið er að vátryggingatakar verði fyrir neikvæðum áhrifum.
    Ekki er gert ráð fyrir að innleiðing gerðanna hafi mikil áhrif á núverandi verkefni fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands eða eftirlitsskylda aðila.
    Ekki er gert ráð fyrir miklum áhrifum á fjárhag ríkisins. Skv. 62. gr. stofnreglugerðanna um evrópsku eftirlitsstofnanirnar eru þær fjármagnaðar með þrenns konar hætti; 1) framlagi frá ESB, 2) framlagi frá viðkomandi eftirlitsstofnun í hverju ríki innan EES (Fjármálaeftirlit Seðlabankans í tilviki Íslands) og 3) gjöldum sem innheimt eru af eftirlitsskyldum aðilum sem heyra undir beint eftirlit evrópsku eftirlitsstofnananna. Að frátöldum eftirlitsgjöldum sem eftirlitsskyldir aðilar greiða ber ESB um 40% af kostnaði evrópsku eftirlitsstofnananna en eftirlitsstofnanir einstakra ríkja EES um 60%. EFTA-ríkin innan EES hafa hingað til ekki tekið þátt í þeim kostnaði sem ESB greiðir til stofnananna en með ákvörðun nr. 88/2026 verður breyting þar á. Ákvörðunin kveður á um kostnaðarþátttöku ríkjanna sem reiknast árlega á grundvelli reiknireglu 82. gr. EES-samningsins, sem tekur mið af landsframleiðslu ríkjanna, og bókunar 32 við samninginn. Samkvæmt útreikningi EFTA-skrifstofunnar myndi kostnaður ríkissjóðs Íslands á árinu 2026 vera um 97 þúsund evrur eða rúmlega 13 millj. kr. Sá kostnaður kæmi til viðbótar framlagi Seðlabanka Íslands.
    Í ákvörðun nr. 88/2026 eru lagðar til hliðstæðar aðlaganir og gerðar voru við upptöku upprunalegu reglugerðanna (ESB) 1092-1095/2010, um stofnun evrópsks eftirlitskerfis fyrir fjármálamarkaði, í EES-samninginn í samræmi við tveggja stoða kerfi samningsins. Fela þær í sér að bindandi ákvarðanir sem varða ábyrgðarsvið evrópsku eftirlitsstofnananna gagnvart stjórnvöldum og aðilum á fjármálamarkaði í EFTA-ríkjunum innan EES eru og verða áfram teknar af Eftirlitsstofnun EFTA.
    Upptaka gerðanna í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á breytingar á lögum um evrópskt eftirlitskerfi á fjármálamarkaði, nr. 24/2017, lögum um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021, lögum um fjárhagslegar viðmiðanir, nr. 7/2021, lögum um vátryggingastarfsemi, nr. 100/2016, og lögum um vátryggingasamstæður, nr. 60/2017. Stefnt er að því að fjármála- og efnahagsráðherra leggi fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd og efnahags- og viðskiptanefnd um upptöku gerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerðu þær ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umræddar ákvarðanir voru teknar og gerðirnar kynntar nefndinni sérstaklega.

5. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226/2026 frá 10. júlí 2026 um breytingu á bókun 26 um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar við EES-samninginn.
    Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226/2026 fellir inn í EES-samninginn eftirfarandi gerðir:
     a.      Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 734/2013 frá 22. júlí 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans.
     b.      Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 frá 13. júlí 2015 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding) sem fellir úr gildi reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999.
    Markmið gerðanna er að mæla fyrir um ítarlegri málsmeðferðarreglur við beitingu reglna um ríkisaðstoð og skýrari lagastoð fyrir framkvæmd ríkisaðstoðarmála. Með gerðunum er einkum stefnt að því að nútímavæða og auka skilvirkni eftirlits með ríkisaðstoð, m.a. með skýrari reglum sem færa Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) rýmri heimildir til upplýsingaöflunar beint frá fyrirtækjum og samtökum fyrirtækja innan EFTA-ríkjanna innan EES, bæði við formlegar rannsóknir og með athugunum á heilum atvinnugreinum þegar grunur er um röskun á samkeppni, meðferð kvartana, rannsóknir á tilteknum atvinnugreinum og samstarf eftirlitsaðila með ríkisaðstoð við innlenda dómstóla. Með breytingunum er ESA einnig gert kleift að beita fyrirtæki og samtök fyrirtækja sektum og févítum ef þau sinna ekki upplýsingaskyldu sinni eða veita rangar eða ófullnægjandi upplýsingar. Þá er samstarf ESA og dómstóla í EFTA-ríkjunum innan EES eflt með heimildum ESA til að leggja fram skriflegar og munnlegar athugasemdir í dómsmálum um ríkisaðstoð og veita dómstólum upplýsingar og álit um beitingu ríkisaðstoðarreglna. Breytingarnar fela ekki í sér nýtt kerfi fyrir ríkisaðstoðarmál eða stofnun nýrra verkefna hjá íslenskum stjórnvöldum.
    Ekki eru gerðar aðlaganir í ákvörðun nr. 226/2026 við upptöku gerðanna í EES-samninginn. Upptaka fyrrgreindra gerða í EES-samninginn og innleiðing þeirra hér á landi kallar á lagabreytingar. Gert er ráð fyrir að sett verði heildarlög um meðferð ríkisaðstoðarmála til að tryggja fullnægjandi lagastoð fyrir þeim ákvæðum gerðanna sem varða framkvæmd hér á landi. Atvinnuvegaráðherra áformar að leggja fram frumvarp í þessu skyni á yfirstandandi löggjafarþingi. Ekki er gert ráð fyrir fjárhagsáhrifum fyrir ríkissjóð vegna lögfestingar frumvarpsins.
    Haft var samráð við utanríkismálanefnd um upptöku reglugerðanna í samræmi við reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála og gerði hún ekki athugasemdir við upptöku þeirra í EES-samninginn. Einnig var haft samráð við utanríkismálanefnd í aðdraganda fundar sameiginlegu EES-nefndarinnar þar sem umrædd ákvörðun var tekin.

6. Um upptöku ESB-gerða í EES-samninginn og um stjórnskipulegan fyrirvara.
    Á hverju ári er nokkur fjöldi ESB-gerða tekinn upp í EES-samninginn með ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar. Samkvæmt EES-samningnum skuldbinda ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar aðildarríkin að þjóðarétti um leið og þær hafa verið teknar, nema eitthvert þeirra beiti heimild skv. 103. gr. EES-samningsins til að setja fyrirvara um að ákvörðun geti ekki orðið bindandi strax vegna stjórnskipulegra skilyrða heima fyrir. Viðkomandi aðildarríki hefur þá sex mánaða frest frá töku ákvörðunar í sameiginlegu nefndinni til að aflétta fyrirvaranum.
    Almennt hafa íslensk stjórnvöld einungis gert stjórnskipulegan fyrirvara þegar innleiðing ákvörðunar kallar á lagabreytingar hér landi, en í því tilviki leiðir af 21. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, að afla ber samþykkis Alþingis áður en ákvörðun er staðfest. Slíkt samþykki getur Alþingi alltaf veitt samhliða viðeigandi lagabreytingu, en einnig hefur tíðkast að heimila stjórnvöldum að skuldbinda sig að þjóðarétti með þingsályktun áður en landsréttinum er með lögum breytt til samræmis við viðkomandi ákvörðun.
    Áðurnefnd 21. gr. stjórnarskrárinnar tekur til gerðar þjóðréttarsamninga en hún á augljóslega einnig við um þau tilvik þegar breytingar eru gerðar á slíkum samningum. Samkvæmt ákvæðinu er samþykki Alþingis áskilið ef samningur felur í sér afsal eða kvaðir á landi eða landhelgi eða ef hann horfir til breytinga á stjórnarhögum ríkisins. Síðarnefnda atriðið hefur verið túlkað svo að samþykki Alþingis sé áskilið ef gerð þjóðréttarsamnings kallar á lagabreytingar hér á landi.
    Umræddar ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar fela í sér breytingar á EES-samningnum en þar sem þær kalla á lagabreytingar hér á landi voru þær teknar með stjórnskipulegum fyrirvara. Í samræmi við það sem að framan segir er óskað eftir samþykki Alþingis fyrir þeim breytingum á EES-samningnum sem í ákvörðununum felast.


Fylgiskjal I.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 85/2025 frá 14. mars 2025 um breytingu á XXII. viðauka (Félagaréttur) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_I.pdf


Fylgiskjal II.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2121 frá 27. nóvember 2019 um breytingu á tilskipun (ESB) 2017/1132 að því er varðar breytingar, samruna og skiptingar yfir landamæri.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_II.pdf


Fylgiskjal III.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 243/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_III.pdf


Fylgiskjal IV.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/2631 frá 22. nóvember 2023 um evrópsk græn skuldabréf og valkvæða skýrslugjöf um skuldabréf sem eru markaðssett sem umhverfislega sjálfbær og sjálfbærnitengd skuldabréf.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_IV.pdf



Fylgiskjal V.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 88/2026 frá 20. mars 2026 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_V.pdf



Fylgiskjal VI.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2175 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1093/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska bankaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1094/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska vátrygginga- og lífeyrissjóðaeftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 1095/2010 um að koma á fót evrópskri eftirlitsstofnun (Evrópska verðbréfamarkaðseftirlitsstofnunin), reglugerð (ESB) nr. 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga, reglugerð (ESB) 2016/1011 um vísitölur sem notaðar eru sem viðmiðanir í fjármálagerningum og fjárhagslegum samningum eða til að mæla árangur fjárfestingarsjóða og reglugerð (ESB) 2015/847 um upplýsingar sem fylgja skulu við millifærslu fjármuna.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_VI.pdf


Fylgiskjal VII.


Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2176 frá 18. desember 2019 um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 1092/2010 um þjóðhagsvarúðareftirlit með fjármálakerfinu á sviði Evrópusambandsins og um stofnun Evrópska kerfisáhætturáðsins.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_VII.pdf



Fylgiskjal VIII.


Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2177 frá 18. desember 2019 um breytingu á tilskipun 2009/138/EB um stofnun og rekstur fyrirtækja á sviði vátrygginga og endurtrygginga (Gjaldþolsáætlun II), tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga og tilskipun (ESB) 2015/849 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis eða til fjármögnunar hryðjuverka.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_VIII.pdf



Fylgiskjal IX.


Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 226/2026 frá 10. júlí 2026 um breytingu á bókun 26 um valdsvið og störf Eftirlitsstofnunar EFTA á sviði ríkisaðstoðar við EES-samninginn.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_IX.pdf


Fylgiskjal X.


Reglugerð ráðsins (ESB) nr. 734/2013 frá 22. júlí 2013 um breytingu á reglugerð ráðsins (EB) nr. 659/1999 um ítarlegar reglur um beitingu 93. gr. EB-sáttmálans.

www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_X.pdf


Fylgiskjal XI.


Reglugerð ráðsins (ESB) 2015/1589 frá 13. júlí 2015 um ítarlegar reglur um beitingu 108. gr. sáttmálans um starfshætti Evrópusambandsins (kerfisbinding).


www.althingi.is/altext/pdf/158/fylgiskjol/s0423-f_XI.pdf