Ferill 361. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 477  —  361. mál.




Fyrirspurn


til innviðaráðherra um lokun prófstöðvar ökuprófa á Hvolsvelli.

Frá Ingveldi Önnu Sigurðardóttur.


     1.      Hver er afstaða ráðherra til lokunar prófstöðvar ökuprófa á Hvolsvelli?
     2.      Hver tók ákvörðun um að hætta að bjóða upp á próftöku á Hvolsvelli?
     3.      Var ákvörðun um lokun tekin í samráði við hagaðila, þ.e. Ökukennarafélag Íslands, sveitarstjórnir, íbúa á svæðinu eða aðra?


Skriflegt svar óskast.