Ferill 363. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 479 — 363. mál.
Fyrirspurn
til fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald af ökutækjum sem koma til landsins með Norrænu.
Frá Þórarni Inga Péturssyni.
1. Hvernig er innheimtu kílómetragjalds af ökutækjum sem koma til landsins með Norrænu til Seyðisfjarðar háttað? Óskað er eftir að gerð verði sérstaklega grein fyrir því hvernig akstur erlendra ökutækja sem eru tímabundið hér á landi er skráður, hver ber ábyrgð á skráningunni, hvenær og með hvaða hætti gjaldið er greitt og hvernig gengið er úr skugga um að það hafi verið greitt áður en ökutækin fara úr landi.
2. Hversu há fjárhæð hefur verið greidd í ríkissjóð vegna kílómetragjalds af ökutækjum sem komið hafa til landsins með Norrænu frá því að gjaldtaka af þeim hófst? Óskað er eftir að fjárhæðin verði sundurliðuð eftir þyngdarflokkum ökutækja samkvæmt gjaldskrá og að fjöldi ökutækja sem greitt hefur verið af komi fram fyrir hvern þyngdarflokk.
Skriflegt svar óskast.