Ferill 64. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 64  —  64. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um þjóðfána Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið, nr. 34/1944 (notkun þjóðfánans).

Flm.: Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Ingibjörg Davíðsdóttir, Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigríður Á. Andersen, Snorri Másson, Þorgrímur Sigmundsson.


1. gr.

    Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Á húsum opinberra stofnana, sem eru í umsjá valdsmanna eða sérstakra forstöðumanna ríkisins, er einungis heimilt að draga á stöng þjóðfána Íslendinga. Þó er heimilt að draga á stöng, auk þjóðfána Íslendinga, þjóðfána annarra ríkja á þjóðhátíðardegi þeirra og við opinberar heimsóknir fulltrúa þeirra ríkja. Ráðuneytið getur, við sérstakar aðstæður, veitt undanþágur frá þessu ákvæði.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Frumvarp þetta var áður flutt á 157. löggjafarþingi ( 194. mál). Frumvarpið er nú lagt fram að nýju óbreytt.
    Þjóðfáni Íslendinga er einstakt tákn um fullveldi Íslands. Fáninn er sameiningartákn sem íslenska þjóðin hefur hyllt allt frá opinberri staðfestingu hans 19. júní 1915.
    Nýverið breyttu Danir lögum um danska þjóðfánann, Dannebrog, þar sem skýrt er hvernig skuli nota hann við opinberar byggingar. Þar er m.a. tekið fram að bannað sé að flagga honum með öðrum þjóð- eða svæðisfánum, með fáum afmörkuðum undantekningum. Svipaðar reglur má finna um norska fánann, nema í Noregi má einnig nota samíska fánann eða fána sveitarfélaga og fylkisfána. Í Þýskalandi eru erlendir fánar eða fánar alþjóðastofnana notaðir við „viðeigandi tilefni“ og tekin um það sjálfstæð ákvörðun.
    Flutningsmenn þessa frumvarps leggja áherslu á mikilvægi íslenska þjóðfánans og að um notkun hans við opinberar byggingar gildi skýrar reglur, í þeim tilgangi að hann verði meira notaður og með því hvatt til samstöðu þjóðarinnar.