Ferill 77. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.


158. löggjafarþing 2026–2027.
Þingskjal 77  —  77. mál.
Stjórnarfrumvarp.



Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um ársreikninga, nr. 3/2006 (stærðarhlutföll, endurskoðunarmörk, skilafrestur o.fl.).

Frá atvinnuvegaráðherra.


1. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 2. gr. laganna:
     a.      Eftirfarandi breytingar verða á 11. tölul.:
                  1.      Í stað fjárhæðarinnar „20.000.000 kr.“ í 1. tölul. a-liðar kemur: 50.000.000 kr.
                  2.      Í stað fjárhæðarinnar „40.000.000 kr.“ í 2. tölul. a-liðar kemur: 100.000.000 kr.
                  3.      Í stað fjárhæðarinnar „600.000.000 kr.“ í 1. tölul. b-liðar kemur: 750.000.000 kr.
                  4.      Í stað fjárhæðarinnar „1.200.000.000 kr.“ í 2. tölul. b-liðar kemur: 1.500.000.000 kr.
                  5.      Í stað fjárhæðarinnar „3.000.000.000 kr.“ í 1. tölul. c-liðar kemur: 3.750.000.000 kr.
                  6.      Í stað fjárhæðarinnar „6.000.000.000 kr.“ í 2. tölul. c-liðar kemur: 7.500.000.000 kr.
                  7.      Í stað fjárhæðarinnar „3.000.000.000 kr.“ í 1. tölul. d-liðar kemur: 3.750.000.000 kr.
                  8.      Í stað fjárhæðarinnar „6.000.000.000 kr.“ í 2. tölul. d-liðar kemur: 7.500.000.000 kr.
     b.      Eftirfarandi breytingar verða á 33. tölul.:
                  1.      Í stað fjárhæðarinnar „600.000.000 kr.“ í 1. tölul. a-liðar kemur: 750.000.000 kr.
                  2.      Í stað fjárhæðarinnar „1.200.000.000 kr.“ í 2. tölul. a-liðar kemur: 1.500.000.000 kr.
                  3.      Í stað fjárhæðarinnar „3.000.000.000 kr.“ í 1. tölul. b-liðar kemur: 3.750.000.000 kr.
                  4.      Í stað fjárhæðarinnar „6.000.000.000 kr.“ í 2. tölul. b-liðar kemur: 7.500.000.000 kr.
                  5.      Í stað fjárhæðarinnar „3.000.000.000 kr.“ í 1. tölul. c-liðar kemur: 3.750.000.000 kr.
                  6.      Í stað fjárhæðarinnar „6.000.000.000 kr.“ í 2. tölul. c-liðar kemur: 7.500.000.000 kr.

2. gr.

    Við 8. mgr. 3. gr. laganna bætist nýr stafliður, svohljóðandi: félög sem hafa heildareignir umfram 200.000.000 kr. á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári.

3. gr.

    Á eftir 66. gr. e laganna kemur ný grein, 66. gr. f, ásamt fyrirsögn, svohljóðandi:

Skýrsla með tekjuskattsupplýsingum.

    Eftirfarandi félög skulu semja og birta skýrslu með tekjuskattsupplýsingum:
     a.      Endanlegt móðurfélag fjölþjóðlegrar heildarsamstæðu ef hrein velta á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári var umfram 111.000.000.000 kr., eins og fram kemur í samstæðureikningsskilum félagsins.
     b.      Félag sem er ekki hluti af samstæðu en þó með staðfestu eða hefur fasta starfsstöð í fleiri en einu skattaumdæmi ef hrein velta var umfram 111.000.000.000 kr. á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári samkvæmt ársreikningi.
     c.      Meðalstór og stór dótturfélög sem lúta yfirráðum félags sem um getur í a-lið, og falla ekki undir landslög, skulu semja, birta og gera aðgengilega skýrslu með tekjuskattsupplýsingum varðandi hið endanlega móðurfélag, sbr. a-lið.
     d.      Útibú félags sem um getur í a- eða b-lið, og fellur ekki undir landslög, skulu semja, birta og gera aðgengilega skýrslu með tekjuskattsupplýsingum varðandi félögin sem um getur í a- eða b-lið.
    Ef hrein velta í a- og b-lið er ekki lýsandi fyrir starfsemi félagsins skal miða við aðrar tekjur, þ.m.t. tekjur af fjármálagerningum og söluhagnað.
    Opinber skýrsla með tekjuskattsupplýsingum skv. 1. mgr. skal innihalda upplýsingar um alla starfsemi félags skv. a- eða b-lið 1. mgr., þ.m.t. upplýsingar um öll eignatengd félög sem tekin eru með í samstæðureikningsskilin að því er varðar viðkomandi fjárhagsár.
    Félög skv. a- og b-lið 1. mgr. skulu skila skýrslu með tekjuskattsupplýsingum til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar með ársreikningi í samræmi við ákvæði 109. gr.
    Meðalstór og stór dótturfélög skv. c-lið 1. mgr. skulu skila inn skýrslu með tekjuskattsupplýsingum til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar, og ef við á yfirlýsingu ef félag skv. a-lið 1. mgr. hefur ekki gert nauðsynlegar upplýsingar aðgengilegar, með staðfestu endurriti ársreiknings í samræmi við 109. gr.
    Útibú skv. d-lið 1. mgr. skulu skila inn skýrslu með tekjuskattsupplýsingum til ársreikningaskrár til opinberrar birtingar, og ef við á yfirlýsingu ef félög skv. a- eða b-lið 1. mgr. hafa ekki gert nauðsynlegar upplýsingar aðgengilegar, með staðfestu endurriti ársreiknings í samræmi við 112. gr.
    Stjórn og framkvæmdastjórar félags skv. a- og b-lið 1. mgr. bera ábyrgð á gerð, skilum og birtingu skýrslu með tekjuskattsupplýsingum.
    Stjórn og framkvæmdastjórar dótturfélags skv. c-lið 1. mgr. og útibússtjóri útibús skv. d-lið 1. mgr. skulu tryggja að skýrsla með tekjuskattsupplýsingum, og ef við á yfirlýsing ef félög skv. a- eða b-lið 1. mgr. hafa ekki gert nauðsynlegar upplýsingar aðgengilegar, sé gerð í samræmi við 3. mgr. og skilað og birt í samræmi við 4. mgr.
    Ráðherra skal í reglugerð kveða nánar á um þær tekjuskattsupplýsingar sem félögum sem falla undir grein þessa ber að taka saman og birta, svo og um nánari framkvæmd greinarinnar.

4. gr.

    2. mgr. 68. gr. laganna fellur brott.

5. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 98. gr. laganna:
     a.      Í stað orðanna „tvö næstliðin reikningsár“ og „3.–5. mgr.“ í 1. málsl. 1. mgr. kemur: viðkomandi og síðastliðið reikningsár; og: 2.–7. mgr.
     b.      Í stað fjárhæðarinnar 200.000.000 kr. í 1. tölul. 1. mgr. kemur: 250.000.000 kr.
     c.      Í stað fjárhæðarinnar 400.000.000 kr. í 2. tölul. 1. mgr. kemur: 500.000.000 kr.
     d.      Á undan 2. málsl. 1. mgr. koma tveir nýir málsliðir, svohljóðandi: Ef hrein velta er ekki lýsandi fyrir starfsemi félags skal miða við aðrar tekjur, þ.m.t. tekjur af fjármálagerningum og söluhagnaði. Flokkun félaga skal ekki breytast nema félag annaðhvort fari yfir eða undir viðmiðunarmörk viðkomandi og síðastliðins reikningsárs.
     e.      Við bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Ákvæði 1. mgr. nær þó ekki til félaga ef heildareignir á viðkomandi og síðastliðnu reikningsári nema a.m.k. 1.500.000.000 kr.

6. gr.

    Eftirfarandi breytingar verða á 109. gr. laganna:
     a.      1. mgr. orðast svo:
                  Ársreikningum skal skilað til ársreikningaskrár eins og hér segir:
                  1.      Örfélag skal senda ársreikningaskrá ársreikning sinn eigi síðar en viku eftir staðfestingu ársreiknings á aðalfundi, þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs eða innan þess frests sem ríkisskattstjóri veitir skattaðilum til að skila framtölum sínum, sbr. ákvæði 2. mgr. 93. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003.
                  2.      Lítið eða meðalstórt félag sem ekki fellur undir 4. eða 5. tölul. skal senda ársreikningaskrá ársreikning sinn eigi síðar en viku eftir staðfestingu ársreiknings á aðalfundi þó eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs.
                  3.      Stórt félag sem ekki fellur undir 4. eða 5. tölul. skal senda ársreikningaskrá ársreikning sinn eigi síðar en viku eftir staðfestingu ársreiknings á aðalfundi, þó eigi síðar en sex mánuðum eftir lok reikningsárs.
                  4.      Félag sem hefur hlutabréf sín eða skuldabréf skráð á skipulegum markaði í ríki innan Evrópska efnahagssvæðisins, í aðildarríki stofnsamnings Fríverslunarsamtaka Evrópu eða í Færeyjum, skal senda ársreikningaskrá ársreikning sinn eigi síðar en viku eftir staðfestingu ársreiknings á aðalfundi, þó eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs.
                  5.      Félag sem beitir alþjóðlegum reikningsskilastöðlum samkvæmt heimild í 92. gr. skal senda ársreikningaskrá ársreikning sinn eigi síðar en viku eftir staðfestingu ársreiknings á aðalfundi, þó eigi síðar en fjórum mánuðum eftir lok reikningsárs.
     b.      2. mgr. orðast svo:
                  Á sama hátt skulu félög sem skylt er að semja samstæðureikning skv. VII. kafla, senda ársreikningaskrá samstæðureikning sinn ásamt áritun endurskoðanda innan þeirra tímafresta sem kveðið er á um í 1. mgr.
     c.      Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
                  Ársreikningum og samstæðureikningum skal skilað rafrænt til ársreikningaskrár í samræmi við reglur sem ársreikningaskrá setur.

7. gr.

    Á eftir 20. tölul. 1. mgr. 122. gr. laganna kemur nýr töluliður, svohljóðandi: 66. gr. f um skyldu til að semja, skila og birta skýrslu með tekjuskattsupplýsingum, og ef við á yfirlýsingu skv. 5. eða 6. mgr. 66. gr. f.

8. gr.

    Við 127. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:
    Viðmiðunarmörk í 66. gr. f miðast við gengi evru 13. júní 2025. Ráðherra er heimilt að breyta þessum fjárhæðum til samræmis við breytingar á fjárhæðum í tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ ESB að því er varðar birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja og útibúa eða ef verulegar breytingar verða á gengi evru.

9. gr.

    Við 128. gr. laganna bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
    Lög þessi fela í sér innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2021/2101 frá 24. nóvember 2021 um breytingu á tilskipun 2013/34/ESB að því er varðar birtingu tekjuskattsupplýsinga af hálfu tiltekinna fyrirtækja og útibúa.
    Lög þessi fela í sér innleiðingu á tilskipun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2775 frá 17. október 2023 um breytingu á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2013/34/ESB að því er varðar breytingar á stærðarviðmiðunum fyrir örfyrirtæki, lítil, meðalstór og stór fyrirtæki eða samstæður.

10. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi og koma til framkvæmda fyrir reikningsár sem hefst 1. janúar 2026 eða síðar.

Greinargerð.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.