Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
80. löggjafarþing 1959–60.
Þskj. 390  —  85. mál.




     ÞINGSÁLYKTUN

um auknar krabbameinsvarnir.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að beita sér fyrir því í samráði við Krabbameinsfélag Íslands og heilbrigðisyfirvöld landsins, að krabbameinsvarnir verði efldar svo sem frekast má verða. Í þeim tilgangi verði m.a. lögð áherzla á:
     a.      að efla allar rannsóknir, sem nauðsynlegar eru við greiningu á krabbameini;
     b.     að auka stuðning við öflun fullkomnustu tækja til rannsókna og lækninga á krabbameini;
     c.     að bæta aðstöðu leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands og athuga, hvort tiltækilegt sé að stofna leitarstöðvar utan Reykjavíkur;
     d.     að aukin verði almenn fræðslustarfsemi um sjúkdóminn.


Samþykkt á Alþingi 4. maí 1960.