Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
80. löggjafarþing 1959–60.
Þskj. 605  —  126. mál.





ÞINGSÁLYKTUN

um leit að rækjumiðum.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að hlutast til um, að svo fljótt sem auðið er verði gerð leit að rækjumiðum fyrir Austurlandi, Norðurlandi og á öðrum þeim hafsvæðum umhverfis landið, þar sem ætla má, að rækju sé að finna.


Samþykkt á Alþingi 1. júní 1960.