Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 736  —  43. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um kísilgúrverksmiðju við Mývatn.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta nú þegar gera nauðsynlegar ráðstafanir til þess að fá úr því skorið, hvort ekki sé arðvænlegt að koma upp verksmiðju til vinnslu kísilgúrs úr Mývatni, og kanna þá jafnframt, hverjar leiðir séu heppilegastar til þess að tryggja fjárhagsgrundvöll þeirrar verksmiðju.


Samþykkt á Alþingi 11. apríl 1962.