Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
82. löggjafarþing 1961–62.
Þskj. 803  —  87. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um kvikmyndun íslenzkra starfshátta.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um það í samráði við þjóðminjavörð, að fræðslumyndasafn ríkisins og menntamálaráð Íslands skipuleggi og beiti sér fyrir kvikmyndun íslenzkra starfshátta, sem hætta er á að falli í gleymsku að öðrum kosti.


Samþykkt á Alþingi 16. apríl 1962.