Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
84. löggjafarþing 1963–64.
Þskj. 351  —  19. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um sérstakar örorku- og dánarbætur sjómanna.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta athuga, á hvern hátt megi tryggja, að allir íslenzkir sjómenn njóti sérstakrar slysatryggingar, eigi lægri en 200 þúsund krónur miðað við fulla örorku eða dauða. Athugun skal lokið fyrir þinglok vorið 1965.


Samþykkt á Alþingi 4. marz 1964.