Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
84. löggjafarþing 196364.
Þskj. 417 141. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um tryggingar gegn uppskerubresti og afurðatjóni í landbúnaði.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa fjóra menn í nefnd, einn tilnefndan af stjórn Bjargráðasjóðs Íslands, annan af Búnaðarfélagi Íslands, hinn þriðja af Stéttarsambandi bænda og hinn fjórða án tilnefningar, til að endurskoða lög um búfjártryggingar og önnur lög, er málið varða, í því skyni, að komið verði á fót fyrir landbúnaðinn tryggingum gegn uppskerubresti og afurðatjóni með hliðsjón af aflatryggingum sjávarútvegsins. Sá nefndarmaður, sem skipaður er af ríkisstjórninni án tilnefningar, skal vera formaður nefndarinnar.
Samþykkt á Alþingi 1. apríl 1964.