Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
84. löggjafarþing 1963–64.
Þskj. 441  —  41. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

um ráðstafanir til að tryggja, að hlunnindajarðir haldist í ábúð,

og athugun á því, hvers vegna góðar bújarðir fari í eyði.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa þriggja manna nefnd og sé hún þannig skipuð, að búnaðarmálastjóri og landnámsstjóri séu sjálfkjörnir, en landbúnaðarráðherra skipi þriðja nefndarmanninn án tilnefningar.
    Verkefni nefndarinnar séu:
     1.      Að kynna sér ástæður fyrir því, að jarðir fara í eyði, og sé einkum athugað, að hve miklu leyti þær fara í eyði vegna þess, að einstakir menn kaupi þær eða sleppi ekki eignarrétti sínum af þeim vegna laxveiði eða annarra hlunninda.
     2.      Að safna gögnum um áhrif slíkrar þróunar á landbúnað annarra þjóða og ráðstafanir þeirra þjóða til varnar gegn henni.
    Nefndin hraði störfum svo sem auðið er og skili tillögum til úrbóta svo fljótt sem verða má.
    Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.


Samþykkt á Alþingi 9. apríl 1964.