Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
86. löggjafarþing 1965–66.
Þskj. 720  —  173. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um endurskoðun lagaákvæða um löndun

erlendra fiskiskipa í íslenzkum höfnum.


    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta fram fara athugun á því, hvort ekki sé tímabært að láta fram fara endurskoðun á gildandi lagaákvæðum um löndun erlendra fiskiskipa á afla sínum í íslenzkum höfnum með það fyrir augum að bæta úr atvinnuerfiðleikum einstakra byggðarlaga, sem skortir hráefni til vinnslu.


Samþykkt á Alþingi 5. maí 1966.