Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
86. löggjafarþing 1965–66.
Þskj. 721  —  73. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um rannsókn varðandi lausn á raforkuþörf Vestur-Skaftfellinga

austan Mýrdalssands.



    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta rannsaka til fullnustu, hvernig hagkvæmast muni vera að leysa raforkuþörf Vestur-Skaftfellinga þeirra, sem búa austan Mýrdalssands, og vinna að framgangi þess máls svo fljótt sem auðið er.


Samþykkt á Alþingi 5. maí 1966.