Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
87. löggjafarþing 1966–67.
Þskj. 480  —  67. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um bætta aðbúð sjómanna.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að vinna að því í samráði við samtök sjómanna og útvegsmanna og viðkomandi sveitarfélög, að stofnsettar verði og starfræktar sjómannastofur á síldveiðihöfnum á Austurlandi og á stærri fiskihöfnum annars staðar, þar sem þörfin er mest vegna aðkomusjómanna.


Samþykkt á Alþingi 13. apríl 1967.