Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
87. löggjafarþing 196667.
Þskj. 604 103. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um fullkomna rannsókn á samgöngumöguleikum yfir Hvalfjörð.
Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa þriggja manna nefnd til þess að annast alhliða rannsókn á því, hvernig hagkvæmast muni að leysa samgönguþörfina milli þéttbýlisins í og við Reykjavík annars vegar og Akraness, Borgarfjarðar og til Vestur- og Norðurlands hins vegar. Verði nefndinni heimilað að ráða sérfræðilega aðstoð, bæði verkfræðilega og hagfræðilega, svo að unnt verði að finna niðurstöðu, byggða á eins traustum grundvelli og mögulegt er, bæði að því er varðar tæknileg og þjóðhagsleg sjónarmið. Í nefndina verði valinn einn maður búsettur á Akranesi.
Nefndin skili áliti sem fyrst, og eigi síðar en í árslok 1968. Kostnaður við rannsókn þessa greiðist úr ríkissjóði.
Samþykkt á Alþingi 18. apríl 1967.