Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
88. löggjafarþing 196768.
Þskj. 508 136. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um, að bændaskólarnir veiti fræðslu í fiskirækt og fiskeldi.
Efri deild Alþingis ályktar að skora á landbúnaðarráðherra að hlutast til um, að nú þegar, eða svo fljótt sem verða má, verði fræðsla um ræktun og eldi vatnafiska efld við bændaskólana í landinu. Einnig að gera ráðstafanir til, að ráðunautar í fiskirækt og fiskeldi verði ráðnir til starfa, ef það þykir betur henta en að öll fræðsla og leiðbeiningar um fiskirækt verði á vegum Veiðimálastofnunarinnar.
Samþykkt í efri deild Alþingis 2. apríl 1968.