Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
90. löggjafarþing 1969–70.
Þskj. 298  —  32. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um undirbúning löggjafar um þjóðaratkvæði.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka, hvort rétt sé að setja löggjöf um þjóðaratkvæði í mikilvægum löggjafarmálefnum svo og hvort rétt sé að setja grundvallarreglur þar um í stjórnarskrána. Skal ríkisstjórnin, ef hún telur ástæðu til, láta semja lagafrumvarp um það efni. Afla skal sem fyllstra upplýsinga um öll atriði varðandi þjóðaratkvæðagreiðslu, þar á meðal um reynslu annarra þjóða í þeim efnum, en einkum ber að athuga eftirtalin atriði:
     a.      hvort í ákveðnum tilvikum eigi að vera skylda eða aðeins heimild til þjóðaratkvæðagreiðslu;
     b.      hvaða aðilar eigi að fá rétt til að krefjast þjóðaratkvæðagreiðslu, t.d. hvort þann rétt eigi að veita tiltekinni tölu þingmanna eða ákveðnum fjölda kjósenda; og
     c.      hvort úrslit þjóðaratkvæðagreiðslu eigi að vera bindandi eða aðeins til ráðgjafar.


Samþykkt á Alþingi 28. janúar 1970.