Ferill 129. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 863  —  129. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     rannsókn á möguleikum á útflutningi á framleiðsluvörum gróðurhúsa.




    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta rannsaka það rækilega, hvort möguleikar séu á útflutningi á framleiðsluvörum gróðurhúsa og þá sérstaklega blómum.
    Rannsókn þessari skal hraðað svo, að niðurstöður hennar geti legið fyrir næsta reglulegu Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.