Ferill 190. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


91. löggjafarþing 1970–71.
Þskj. 865  —  190. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um rannsókn á aðstöðu æskufólks til framhaldsnáms.




    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hlutast til um, að stjórnir sveitarfélaga í landinu rannsaki, hver í sínu umdæmi, hvort og þá hversu margir unglingar, sem luku skyldunámi vorið 1970, eru án skólanáms á yfirstandandi skólaári og af hvaða ástæðum það er. Skýrsla um niðurstöður þessarar rannsóknar skal lögð fyrir næsta reglulegt Alþingi.


Samþykkt á Alþingi 5. apríl 1971.