Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 197172.
Þskj. 345 21. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um landhelgismál.
Alþingi ítrekar þá grundvallarstefnu Íslendinga, að landgrunn Íslands og hafsvæðið yfir því sé hluti af íslenzku yfirráðasvæði, og ályktar eftirfarandi:
1. Að fiskveiðilandhelgin verði stækkuð þannig, að hún verði 50 sjómílur frá grunnlínum allt í kringum landið, og komi stækkunin til framkvæmda eigi síðar en 1. september 1972.
2. Að ríkisstjórnum Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýzkalands verði enn á ný gerð grein fyrir því, að vegna lífshagsmuna þjóðarinnar og vegna breyttra aðstæðna geti samningar þeir um landhelgismál, sem gerðir voru við þessi ríki 1961, ekki lengur átt við og séu Íslendingar ekki bundnir af ákvæðum þeirra.
3. Að haldið verði áfram samkomulagstilraunum við ríkisstjórnir Bretlands og Sambandslýðveldisins Þýzkalands um þau vandamál, sem skapast vegna útfærslunnar.
4. Að unnið verði áfram í samráði við fiskifræðinga að ströngu eftirliti með fiskistofnum við landið og settar, eftir því sem nauðsynlegt reynist, reglur um friðun þeirra og einstakra fiskimiða til þess að koma í veg fyrir ofveiði.
5. Að haldið verði áfram samstarfi við aðrar þjóðir um nauðsynlegar ráðstafanir til þess að koma í veg fyrir mengun sjávar og heimilar ríkisstjórninni að lýsa einhliða yfir sérstakri mengunarlögsögu á hafinu umhverfis Ísland.
Samþykkt á Alþingi 15. febrúar 1972.