Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 1971–72.
Þskj. 394  —  23. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um skráningu félaga og firma.



    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að taka til heildarendurskoðunar lagaákvæði um skráningarmál félaga og firma í því skyni, að skráning fari fram á einum stað fyrir landið allt og að öðru leyti gerðar þær breytingar, sem hæfa nútíma þjóðfélagsháttum.
    Að endurskoðun lokinni skal ríkisstjórnin láta semja frumvarp til nýrrar löggjafar um þessi efni og leggja fyrir næsta þing.


Samþykkt á Alþingi 2. marz 1972.