Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill málsins.
92. löggjafarþing 1971–72.
Þskj. 944  —  277. mál.




ÞINGSÁLYKTUN

     um endurskoðun stjórnarskrárinnar.



    Alþingi ályktar, að skipuð skuli 7 manna nefnd til að endurskoða stjórnarskrána. Nefndarmenn skulu kosnir af Alþingi. Forsætisráðherra kveður nefndina saman til fyrsta fundar, en hún skiptir sjálf með sér verkum.
    Nefndinni ber að leita álits sýslunefnda og bæjarstjórna, landshlutasambanda sveitarfélaga og landssambanda stéttarfélaga. Hún skal leita álits lagadeildar Háskóla Íslands og Hæstaréttar um lögfræðileg efni. Með opinberri tilkynningu skal þeim, sem þess kynnu að óska, gefinn kostur á að koma á framfæri við nefndina skriflegum og skriflega rökstuddum breytingartillögum við núgildandi stjórnarskrá fyrir þann tíma, sem nefndin tiltekur.
    Kostnaður við endurskoðun stjórnarskrárinnar greiðist úr ríkissjóði.


Samþykkt á Alþingi 18. maí 1972.