Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
93. löggjafarþing 1972–73.
Þskj. 743 — 210. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um könnun sjónvarpsskilyrða á fiskimiðum umhverfis landið
og gerð kostnaðaráætlunar í því sambandi.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta kanna ítarlega skilyrði til móttöku sjónvarpssendinga á fiskimiðum umhverfis landið. Jafnframt verði gerð kostnaðaráætlun um úrbætur í þessum efnum, ef þeirra reynist þörf. Umræddri könnun og kostnaðaráætlun skal lokið fyrir næsta reglulegt Alþingi.
Samþykkt á Alþingi 14. apríl 1973.