Ferill 41. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


93. löggjafarþing 1972–73.
Þskj. 744  —  41. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


     um endurskoðun laga varðandi úrskurðarvald félagsmálaráðuneytisins


o.fl. um ályktanir sveitarstjórna.




     Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta endurskoða ákvæði sveitarstjórnarlaga, nr. 58/1961, og annarra laga um úrskurðarvald félagsmálaráðuneytisins og annarra stjórnvalda um ályktanir sveitarstjórna. Verði sérstaklega kannað, hvort ekki sé rétt og eðli málsins samkvæmt að fela sérstökum dómstóli að fjalla um tiltekin ágreiningsefni innan sveitarstjórna og ágreiningsefni einstakra aðila eða yfirvalda við sveitarstjórnir, sem nú er skotið til annarra stjórnvalda. Skýrsla um athugun þessa verði lögð fyrir næsta Alþingi, svo og frumvörp til laga, sem athugunin þykir gefa tilefni til, að samin verði.


Samþykkt á Alþingi 14. apríl 1973.