Ferill 18. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 487 — 18. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um vinnu framhaldsskólanemenda við framleiðslustörf á vetrarvertíð.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta athuga, hvort unnt reynist að haga árlegum kennslutíma í framhaldsskólum í verstöðvum á Suðvesturlandi og annars staðar, þar sem skortur er á mannafla til framleiðslustarfa á vetrarvertíð, þannig að þeir nemendur, sem á því hefðu áhuga, geti unnið skólanámsins vegna við slík störf takmarkaðan tíma í mars og apríl.
Jafnframt stuðli ríkisstjórnin að því, að fjölbrautaskólar geti hið allra fyrsta gefið nemendum sínum kost á námsbrautum, þar sem virk þátttaka í atvinnulífinu, svo sem við fiskveiðar og fiskverkun á vetrarvertíð, sé mikilvægur liður í námi þeirra.
Samþykkt á Alþingi 12. mars 1974.