Ferill 48. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 590 — 48. mál.
ÞINGSÁLYKTUN
um bættar vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum.
Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að endurskoða reglur, sem gilda um snjóruðning af vegum, með það í huga að bæta vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum, auka öryggi sjúkraflutninga, auðvelda flutninga barna í skóla, auk mann- og vöruflutninga í þessum byggðarlögum. Ríkisstjórninni er falið að kanna hagkvæmni þess að afla nýtískulegra og öflugra tækja, sem tíðkast í öðrum löndum, til þess að koma þessari stefnu í framkvæmd.
Samþykkt á Alþingi 26. mars 1974.