Ferill 130. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


94. löggjafarþing 1973–74.
Þskj. 798  —  130. mál.




ÞINGSÁLYKTUN


um athugun og tillögur til úrbóta á vanda þeirra aðila, sem stunda veitinga- og gistihúsarekstur að vetrarlagi utan mestu þéttbýlissvæða landsins.




    Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að skipa nefnd til þess að athuga og gera tillögur um úrbætur á vanda þeirra aðila, sem stunda veitinga- og gistihúsarekstur að vetrarlagi utan mestu þéttbýlissvæða landsins. Skal nefndin m.a. taka til athugunar rekstrarafkomu og rekstrarfjárþörf þessara þjónustuaðila yfir vetrarmánuðina, ásamt leit að leiðum til bættrar afkomu, enn fremur tillögur um aðstoð hins opinbera, ef þess er þörf, og samræmingu slíkrar aðstoðar.
    Nefndin skal skila áliti eigi síðar en svo, að leggja megi tillögu hennar fyrir Alþingi á næsta hausti.


Samþykkt á Alþingi 29. apríl 1974.