Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect
97. löggjafarþing 1975–1976.
Þskj. 565  —  257. mál.




Ed.
Frumvarp til jarðalaga


(Lagt fyrir Alþingi á 97. löggjafarþingi 1975–76.)


I. KAFLI

1. gr.

    Tilgangur laga þessara er að tryggja, að nýting lands utan skipulagðra þéttbýlissvæða sé eðlileg og hagkvæm frá þjóðhagslegu sjónarmiði og að eignarráð á landi og búseta á jörðum sé í samræmi við hagsmuni sveitarfélaga og þeirra, sem landbúnað stunda.

2. gr.

    Landbúnaðarráðherra hefur yfirstjórn þeirra mála, sem lög þessi taka til.

3. gr.

    Lög þessi taka til jarða, jarðarhluta, afréttarlanda, öræfa, lóða og landspildna, svo og til ítaka, skóga, vatnsréttinda, veiðiréttinda og hvers konar annarra hlunninda, hvort sem þau eru skilin frá jörð eða ekki. Þéttbýlissvæði, sem skipulögð eru fyrir fasta búsetu manna, sem ekki stunda landbúnað, eru undanskilin ákvæðum laga þessara.
    Rísi ágreiningur um, hvað teljast skuli landbúnaður skv. lögum þessum eða um starfssvið jarðanefnda að öðru leyti, sker landbúnaðarráðherra úr þeim ágreiningi.

II. KAFLI
Um jarðanefndir.
4. gr.
    Í hverri sýslu skal starfa jarðanefnd skipuð þrem mönnum og jafnmörgum til vara, sem kosnir skulu hlutfallskosningu, ef óskað er. Búnaðarsamband viðkomandi sýslu tilnefnir 2 menn í jarðanefnd og sýslunefnd 1 mann. Skulu þeir, sem tilnefndir eru, kunna góð skil á byggð og búháttum í sýslunni. Ráðherra skipar formann nefndarinnar úr hópi tilnefndra manna.
    Allir jarðanefndarmenn skulu vera búsettir á starfssvæði nefndarinnar.
    Jarðanefnd skal skipuð til fjögurra ára í senn.

5. gr.

    Jarðanefndir skulu, hver á sínu svæði, vera sveitarstjórnum til aðstoðar við framkvæmd laga þessara, sbr. 1. gr., með því að:
     1.      Fylgjast með eigendaskiptum og öðrum ráðstöfunum fasteigna skv. nánari fyrirmælum laga þessara.
     2.      Gera tillögur um úthlutun landssvæða til félagsræktunar, byggingar sumarbústaða og almennra útilífsnota, þar sem þörf er talin fyrir land í því skyni.
     3.      Fylgjast með því, að sveitarstjórn gæti ákvæða gildandi laga um mannvirkja gerð í sveitum, töku hvers konar jarðefna og stuðla að góðri umgengni lands og mannvirkja.
     4.      Gæta þess, ásamt sveitarstjórnum, að búseta á jörðum sé í samræmi við ákvæði ábúðarlaga.
     5.      Vera landnámsstjórn til aðstoðar við framkvæmd landnámslaga, hver á sínu svæði.

6. gr.

    Nú eru fyrirhuguð aðilaskipti að réttindum yfir fasteign eða stofnun slíkra réttinda, svo sem fyrir kaup, gjöf, skipti, nauðungarsölu á uppboði, þar með talinni útlagningu til veðhafa, bússkipti, félags- og sameignarslit, fyrirframgreiðslu arfs, lán eða leigu, og er þá jafnan skylt að tilkynna það sveitarstjórn og jarðanefnd og afla samþykkis þeirra til ráðstöfunarinnar. Sama gildir um eigendaskipti að hlutum í félögum, sem eiga fasteignir, sem lög þessi taka til.
    Nú telja sveitarstjórn og jarðanefnd, að ráðstöfun fasteignar sé andstæð hagsmunum sveitarfélagsins, og er þá rétt að synja um áformaða ráðstöfun eignarinnar.
    Nú verða sveitarstjórn og jarðanefnd ekki sammála um meðferð máls og getur þá hvor um sig skotið ágreiningsefninu til ráðherra, sem fellir úrskurð, að fenginni umsögn Búnaðarfélags Íslands og Landnáms ríkisins.
    Samþykkis þarf ekki að afla:
     1.      Ef eigandi ráðstafar fasteignaréttindum til einhvers þeirra, sem upp eru taldir í 1. tölulið 26. gr. laga þessara.
     2.      Þegar ríkissjóður kaupir fasteignir eða selur.
     3.      Þegar banki eða önnur opinber lánastofnun, sem á veð í fasteign, lögveðshafar eða lögtakshafar vegna opinberra gjalda kaupa eða fá útlagða eign á nauðungaruppboði.
     4.      Þegar veiðifélög ráðstafa veiðiréttindum.
     5.      Þegar leigðar eru slægjur, námur eða vatnsréttindi.
    Ákvæði greinar þessarar taka ekki til aðilaskipta að eignarréttindum fyrir lögerfðir eða ráðstöfun slíkra réttinda til annars hjóna við bússkipti vegna skilnaðar, en tilkynna skal þó sveitarstjórn og jarðanefnd um breytingar á eignaraðild, sem verða með þessum hætti.

7. gr.

    Þegar samþykkis sveitarstjórnar og jarðanefndar til ráðstöfunar á fasteign er leitað, ber þeim að afgreiða erindið innan 30 daga frá því að það barst. Hafi svar þá ekki borist, er hin áformaða ráðstöfun heimil næstu 6 mánuði.

8. gr.

    Nú neita sveitarstjórn og/eða jarðanefnd að samþykkja áformaða sölu fasteignar, sbr. 6. gr., og ráðherra staðfestir þá ákvörðun, og getur þá eigandi eða umráðamaður eignarinnar gert kröfu til þess, að sveitarsjóður eða ríkissjóður kaupi eign þá, sem hann vildi láta af hendi. Náist ekki samkomulag um verð, skal kaupverð eignarinnar ákveðið samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms, nr. 11/1973.

9. gr.

    Óheimilt er að þinglýsa skjölum varðandi ráðstöfun fasteignar, sem lög þessi taka til, nema fyrir liggi samþykki viðkomandi sveitarstjórnar og jarðanefndar, sbr. þó 6. og 7. gr.

10. gr.

    Í sveitarfélögum, sem ekki eru skipulagsskyld, er óheimilt að byggja sumarbústaði án samþykkis sveitarstjórnar og jarðanefndar.
    Ef um sumarbústaðahverfi er að ræða, skulu þau skipulögð.
    Það telst sumarbústaður, ef bygging er reist til þess að búa í að sumri til og einungis endrum og eins á öðrum tímum árs.
    Ávallt skal við byggingu sumarbústaða fullnægt kröfum heilbrigðisyfirvalda um frágang rotþróa, olíutanka og annað, sem mengunarhætta getur stafað frá.

11. gr.

    Þar sem jarðanefndir gera tillögur um land til útilífs fyrir almenning, skal eftir því sem aðstæður leyfa nota land í opinberri eigu.
    Tillögur jarðanefndar skulu lagðar fyrir viðkomandi sýslunefnd og ber henni að afla samþykkis hlutaðeigandi sveitarstjórnar og Landnáms ríkisins, áður en þær koma til framkvæmda.
    Nú hljóta tillögur jarðanefndar um land, sem ekki er í opinberri eign, staðfestingu til almennra útivistarafnota, og skal þá jarðanefnd hlutast til um, að sýslunefnd eða sveitarfélög fái umráða- eða eignarrétt á landinu.

12. gr.

    Land, sem við gildistöku laga þessara er nýtt til landbúnaðar, má ekki taka til annarra nota, nema heimild sé til slíks í lögum. Að öðrum kosti þarf samþykki ráðherra, enda hafi það áður verið samþykkt af jarðanefnd og Landnámi ríkisins.
    Samþykki Landnáms ríkisins, jarðanefnda og sveitarstjórna þarf til að skipta landi jarða og sameiginlegu landi fleiri jarða, til að sameina jarðir og til að leggja lönd eða jarðir til afrétta.
    Stofnun nýrra býla er háð samþykki jarðanefnda og staðfestingu Landnáms ríkisins.

13. gr.

    Þar sem skipting jarðar hefur átt sér stað, og bú er ekki rekið á úrskiptum jarðarhluta, er ráðherra heimilt að leyfa eiganda og ábúanda jarðar þeirrar, sem skipt var úr, að fengnum meðmælum sveitarstjórnar, jarðanefndar og landnámsstjórnar, að leysa til sín hinn úrskipta jarðarhluta og leggja hann til hinnar upphaflegu jarðar. Á sama hátt er eiganda og ábúanda nýbýlis heimilt að leysa til býlis síns það, sem eftir stendur af landi hinnar upphaflegu jarðar, sé ekki rekinn þar sjálfstæður búskapur.
    Séu nýbýlin fleiri en eitt, getur einn eigandi krafist þess lands, sem ónytjað er skv. framansögðu. Skulu þá skipti gjörð af Landnámi ríkisins að fengnum tillögum jarðanefndar. Náist ekki samkomulag um verð, skal um mat og greiðslu bóta fara eftir lögum um eignarnám.

14. gr.

    Nú er jörð í sameign, en einn sameigenda rekur bú á jörðinni og hefur þar fasta búsetu, og getur ráðherra þá leyft honum að leysa til sin eignarhluta meðeigenda sinna, enda hafi sveitarstjórn, jarðanefnd og landnámsstjórn mælt með því. Náist ekki samkomulag um verð á hinum innleystu hlutum, skal fara um mat og greiðslu bóta eftir lögum um framkvæmd eignarnáms.

15. gr.

    Ef meðferð jarða, lands eða landsnytja er ekki í samræmi við ákvæði laga þessara og ábúðarlaga, og þörf er á landinu til bættrar aðstöðu viðkomandi byggðarlags, getur landbúnaðarráðherra heimilað sveitarstjórn eignarnám á slíkum eignum, enda hafi jarðanefnd og landnámsstjórn mælt með eignarnámi.

16. gr.

    Skylt er hreppstjórum, oddvitum, ráðunautum, eigendum og ábúendum jarða, og öðrum, sem til þess hafa aðstöðu, að láta í té upplýsingar um jarðir og ábúð á þeim, eftir því sem þörf kann að verða á samkvæmt lögum þessum.

17. gr.

    Ákvörðunum sveitarstjórna eða jarðanefnda er heimilt að skjóta innan eins mánaðar til landbúnaðarráðuneytisins, og skal úrskurður ráðuneytisins kveðinn upp innan fjögurra vikna frá því, er kæra barst.

18. gr.

    Nú er fasteign ráðstafað andstætt fyrirmælum laga þessara, og varðar sú ráðstöfun refsingu, sbr. 61. gr. Auk þess getur sveitarstjórn þá, með samþykki jarðanefndar og ráðherra, höfðað mál til ógildingar ráðstöfuninni með kröfu um, að sveitarfélagið fái þau umráð og not fasteignar, er ráðstöfunin laut að og með sömu skilmálum. Þó getur sveitarstjórn krafist mats á endurgjaldi í samræmi við ákvæði 25. gr. Málsókn skal hefjast innan þriggja mánaða frá því að jarðanefnd barst vitneskja um ráðstöfunina, og ber að halda málinu áfram með eðlilegum hraða.

19. gr.

    Jarðanefnd skal ákveða aðsetursstað sinn í samráði við viðkomandi sýslunefnd og búnaðarsamband.
    Rétt er, þar sem við verður komið, að jarðanefnd og búnaðarsamband hafi samvinnu um skrifstofuhald.
    Jarðanefnd er heimilt að kaupa sérfræðilega aðstoð, þegar þörf krefur.
    Rita skal fundargerðir á öllum fundum jarðanefndar, og halda ber skýrslu yfir allar ráðstafanir fasteigna, sem nefndin fjallar um.

20. gr.

    Kostnaður við störf jarðanefndar greiðist að hálfu af viðkomandi sýslu og búnaðarsambandi og að hálfu af ríkissjóði.
    Landbúnaðarráðherra ákveður þóknun til jarðanefndarmanna.

III. KAFLI
Forkaupsréttur.

21. gr.
    Eigi að selja fasteignarréttindi, sem lög þessi taka til, sbr. 3. gr., á sveitarstjórn þess sveitarfélags, þar sem eignin er, forkaupsrétt að þeim, nema um ráðstöfun ættaróðals sé að ræða, sbr. og 26. gr. laga þessara.
    Nú hefur leiguliði setið jörð í 10 ár eða lengur og á hann þá forkaupsrétt á undan sveitarstjórn, enda taki hann jörðina til ábúðar og fullra nytja.

22. gr.

    Ef fasteignarréttindi eru seld á opinberu uppboði eða lögð veðhafa út, getur forkaupsréttarhafi skv. 21. gr. gengið inn í hæsta boð.
    Uppboðshaldara er skylt að tilkynna forkaupsréttarhafa uppboðsþing um leið og það er ákveðið. Skal forkaupsréttarhafi tilkynna uppboðshaldara innan 5 sólarhringa frá slitum uppboðs, að hann neyti forkaupsréttar síns.

23. gr.

    Forkaupsréttur skv. 21. gr, skal jafnan boðinn skriflega þeirri sveitarstjórn, sem hlut á að máli. Söluverð og aðrir skilmálar skal jafnframt tilgreint á tæmandi hátt. Ef um er að ræða makaskipti á fasteignarréttindum, tilgreini seljandi, hversu hátt hann metur hin framboðnu réttindi til peningaverðs, og hefur þá forkaupsréttarhafi rétt til þess að kaupa þau því verði eða á matsverði skv. 25. gr. Sveitarstjórn skal svara forkaupsréttartilboði skriflega innan fjögurra vikna frá því að henni barst tilboð. Vanræki sveitarstjórn að svara innan þess tíma, hefur hún í það sinn glatað rétti sínum til að kaupa.
    Yfirlýsing um afsal forkaupsréttar skal miðuð við ákveðinn kaupanda og fellur úr gildi sex mánuðum frá dagsetningu.

24. gr.

    Ef eigandi eða annar rétthafi fasteignar ráðstafar fasteignarréttindum andstætt fyrirmælum laga þessara um forkaupsrétt, getur forkaupsréttarhafi, sem órétti var beittur, krafist þess, að salan verði ógilt, enda sé málssókn til þess hafin innan sex mánaða frá því að hann fékk vitneskju um misfelluna og málinu fram haldið með hæfilegum hraða.

25. gr.

    Nú er forkaupsréttarhafa boðið að neyta forkaupsréttar, en tilgreint kaupverð er óeðlilega hátt eða skilmálar ósanngjarnir miðað við almennar viðskiptavenjur, þannig að ætla má að gert sé í því skyni að halda forkaupsréttarhafa frá að neyta réttar síns. Forkaupsréttarhafi getur þá, að fengnu samþykki jarðanefndar, krafist mats dómkvaddra manna á eigninni og gildir það þá sem söluverð.
    Ákveði forkaupsréttarhafi að krefjast mats skal það gert innan 15 daga frá því að tilboð barst og matsgerð lokið innan 3ja vikna þar frá.
    Forkaupsréttarhafa ber síðan innan einnar viku að ákveða, hvort hann neytir forkaupsréttar skv. matsgerðinni.
    Matsmenn ákveða hvernig matskostnaður greiðist.

26. gr.

    Ákvæði laga þessara um forkaupsrétt koma ekki til framkvæmda:
     1.      Þegar jarðeigandi selur eða afhendir jörð maka sínum, barni sínu, barnabarni, kjörbarni, fósturbarni, systkini eða foreldri, enda taki viðtakandi jörðina til ábúðar og fullra nytja.
     2.      Þegar ríkissjóður ráðstafar fasteignarréttindum.
    Falli fasteignarréttindi við erfðir til annarra en þeirra, er greinir í 1. tölulið, á hreppsnefnd rétt á að fá þau keypt því verði, sem þau eru lögð erfingjum til arfs.

IV. KAFLI
Um jarðir í opinberri eigu.

27. gr.

    Jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins fer með málefni jarða í ríkiseign, nema annað sé ákveðið í lögum.

28. gr.

    Ráðherra er heimilt að selja jarðir eða jarðarhluta í ríkiseign þeim sveitarfélögum, sem jarðirnar eru í, enda mæli jarðanefnd með sölu og geri tillögur um söluverð, sem endanlega er ákveðið af ráðherra eða samkvæmt matsgerð dómkvaddra manna.
    Ríkisjarðir, sem ekki byggjast samkvæmt ábúðarlögum og ekki eru teknar til sérstakra nota í þágu hins opinbera, er heimilt að leigja lengst til 10 ára í senn. Sé sótt um jörð til fastrar ábúðar, sem er leigð lausri leigu, er heimilt að segja slíkum samningi upp fyrir áramót miðað við næstu fardaga þar eftir. Leigusamninga um lóðir úr ríkislandi er heimilt að gera til allt að 50 ára, enda séu þeir gerðir í samræmi við skipulagsákvæði.

29. gr.

    Ábúendur ríkisjarða og jarða í eigu opinberra stofnana og sjóða, – nema ákvæði gjafabréfa og skipulagsskráa mæli gegn því, – sem hafa fengið erfða- eða lífstíðarábúð á jörðum sínum, hafa rétt til að fá ábúðarjarðir sínar keyptar, ef þeir fullnægja eftirtöldum skilyrðum:
     1.      Hafa búið á jörðinni minnst 10 ár.
     2.      Gefa út við undirskrift kaupsamnings skuldbindingu um að gera jörðina að ættaróðali og leggja fram nauðsynleg skilríki þar að lútandi.
     3.      Leggja fram yfirlýsingu hlutaðeigandi hreppsnefndar um, að ábúandi hafi setið jörðina vel og að hreppsnefndin mæli með, að hann fái jörðina keypta.
     4.      Leggja fram meðmæli jarðanefndar viðkomandi sýslu með kaupum.
    Ákvæði greinar þessarar taka þó ekki til jarða, sem þörf er á til opinberra nota eða skiptingar í náinni framtíð, heldur ekki til jarða, sem að dómi Búnaðarfélags Íslands og hlutaðeigandi náttúruverndarnefndar eru líklegar til að verða nýttar til annars en búrekstrar, svo sem fólkvangar, sumarbústaðalönd eða til annarra útilífsnota, og ekki til þeirra jarða, sem að dómi Náttúruverndarráðs hafa sérstök náttúrufyrirbæri innan sinna landamarka.
    Námaréttindi og réttur til efnistöku skulu undanskilin sölu, sömuleiðis vatns og jarðhitaréttindi umfram heimilisþörf, ásamt nauðsynlegri aðstöðu til að hagnýta þau réttindi.
    Náist ekki samkomulag um verð milli kaupanda og seljanda, skal mat dómkvaddra manna ráða.
    Sé áformuð sala jarðar eða jarðarhluta, sem seldur hefur verið af ríkissjóði skv. grein þessari, á ríkissjóður forkaupsrétt fyrir hlutfallslega sama verð og jörðin var seld á að viðbættum verðmætisauka vegna framkvæmda eftir að ríkissjóður seldi jörðina.

V. KAFLI
Jarðasjóður.

30. gr.
    Við jarðadeild landbúnaðarráðuneytisins skal starfrækja sjóð, er nefnist Jarðasjóður ríkisins.
    Hlutverk sjóðsins er, skv. nánari ákvörðun laga þessara, að aðstoða sveitarfélög og bændur við eigendaskipti að jörðum og stuðla að því með lánveitingum og framlögum, að búseta á jörðum og nýting lands verði í sem mestu samræmi við hagsmuni viðkomandi sveitarfélags.
    Erindi, sem Jarðasjóði berast varðandi kaup og sölu jarða eða lánveitingar skulu send til umsagnar Búnaðarfélags Íslands og Stéttarsambands bænda áður en þau eru afgreidd.

31. gr.
    Jarðasjóði ríkisins er heimilt að kaupa jarðir, sem svo er ástatt um er hér greinir, enda hafi sveitarstjórn hafnað forkaupsrétti.
     1.      Jarðir, sem ekki seljast með eðlilegum hætti, en eigandi þeirra verður að hætta búskap vegna aldurs eða vanheilsu.
     2.      Jarðir, sem hafa óhagstæð búskaparskilyrði.
     3.      Jarðir, sem ekki njóta framlaga og lána, sem veitt eru til umbóta á lögbýlum, sbr. jarðræktarlög, nr. 79/1972.
     4.      Jarðir, sem eru afskekktar og liggja illa við samgöngum.
     5.      Jarðir, sem eigendur hafa ekki tök á að sitja lengur vegna áhvílandi skulda, enda sitji seljendur jarðirnar áfram.
     6.      Jarðir, sem hreppsnefndir hafa hafnað forkaupsrétti á, en jarðanefnd viðkomandi sýslu mælir með, að Jarðasjóður kaupi.
     7.      Jarðir, sem hlunnindi eða önnur sérstök verðmæti fylgja eða eru þýðingarmiklar fyrir sveitarfélög til að koma betra skipulagi á byggð.
     8.      Jarðir, sem heppilegar teljast til almennra útilífsnota.

32. gr.
    Nú hefur jörð, sem 2.–4. töluliður 31. gr. tekur til, undanfarin 5 ár verið í leiguábúð bónda, sem vill halda áfram búrekstri, og er þá Jarðasjóði heimilt að veita bónda þessum lán til að kaupa aðra jörð með góð framtíðarbúskaparskilyrði. Jarðasjóði er heimilt að veita sveitarfélögum lán til jarðakaupa, þá er þau neyta forkaupsréttar, skv. III. kafla laga þessara.

33. gr.

    Við ákvörðun kaupverðs, samkv. 31. gr., skal af hálfu kaupanda höfð hliðsjón af gangverði hliðstæðra jarða, sé þess kostur, og fjármunum þeim, sem eigandi hefur lagt í jörðina. Náist ekki samkomulag um kaupverð, er hvorum aðila um sig heimilt að óska mats á jörðinni, samkvæmt ákvæðum 36. greinar.
    Jarðasjóði skal ætlað það fjármagn á fjárlögum, að hann geti sinnt hlutverki sínu skv. lögum þessum, að lágmarki kr. 12 000 000.00 ár hvert, auk þess skal greiða andvirði seldra ríkisjarða í Jarðasjóð.

34. gr.

    Jarðir, sem ríkið eignast, samkvæmt 31. gr. laga þessara, má selja sveitarfélögum eða upprekstrarfélögum, sem jörðin heyrir til, enn fremur einstaklingum til varanlegrar ábúðar, ef það, að dómi jarðanefndar, verður til að styðja aðra byggð í viðkomandi sveitarfélagi. Setja skal í sölusamninga ákvæði um meðferð jarðarinnar.
    Heimilt er og, að fengnum meðmælum jarðanefndar, að selja jarðir þessar öðrum jarðeigendum í sama sveitarfélagi, til þess að bæta búrekstraraðstöðu þeirra.
    Ábúendur jarða, sem selt hafa jarðir sínar skv. 5. tölulið 31. gr., eiga rétt á að kaupa þær aftur, ef þeir óska þess.
    Náist ekki samkomulag um verð milli Jarðasjóðs og kaupanda, er hvorum aðila um sig heimilt að óska mats nefndar þeirrar, er starfar samkvæmt 36. gr.

35. gr.

    Jarðanefnd og Búnaðarfélagi Íslands er skylt, áður en kaup fara fram, að rannsaka búrekstrarskilyrði þeirra jarða, sem ríkinu eru boðnar til kaups, skv. 1.–7. tölulið 31. greinar, og gera álitsgjörð um það, hvort réttmætt sé og æskilegt, samkvæmt ákvæðum þessara laga, að ríkið kaupi.

36. gr.

    Landbúnaðarráðherra skipar þrjá menn í nefnd til fjögurra ára í senn til að meta kaupverð jarða, sem Jarðasjóður áformar að kaupa og mats er óskað á. Einn nefndarmanna skal skipaður án tilnefningar, annar samkvæmt tilnefningu Stéttarsambands bænda, en þriðji nefndarmaðurinn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar, og er hann formaður nefndarinnar.
    Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Landbúnaðarráðherra ákveður þóknun nefndarmanna, er greiðist úr Jarðasjóði með öðrum kostnaði.

37. gr.

    Jarðasjóður ríkisins er undanþeginn öllum opinberum gjöldum og sköttum af ónytjuðum jörðum sjóðsins, öðrum en fasteignaskatti og fjallskilum. Öll skjöl, sem gefin eru út af sjóðnum og í hans nafni, skulu undanþegin stimpilgjaldi og þinglýsingargjöldum.
    Nú er fasteign seld á nauðungaruppboði eða við gjaldþrotaskipti, og ber þá uppboðshaldara að rannsaka, hvort eignin sé veðsett Jarðasjóði og geta þess í uppboðsgerðinni. Ef svo reynist, skal landbúnaðarráðuneytinu gert aðvart svo tímanlega, að unnt sé að mæta eða láta mæta við uppboðið.

VI. KAFLI
Um óðalsjarðir.

38. gr.
    Sérhverjum jarðeiganda er heimilt að gera jörð sína að ættaróðali, ef þessi skilyrði eru fyrir hendi:
     a.      Að jörðin sé svo stór eða svo gæðarík, að afraksturinn af búi, er jörðin getur borið, með hlunnindum, er henni fylgja, geti framfært að minnsta kosti meðalfjölskyldu, að dómi Búnaðarfélags Íslands og viðkomandi jarðanefndar.
     b.      Að fyrir liggi samþykki barna jarðeiganda, 16 ára og eldri, um að jörðin sé gerð að ættaróðali.
     c.      Að á jörðinni hvíli ekki aðrar veðskuldir en þær, sem kunna að hafa verið teknar í Stofnlánadeild Búnaðarbanka Íslands, Orkusjóði eða Lífeyrissjóði bænda vegna þeirra framkvæmda á jörðinni, sem þessar stofnanir lána til, eða lánastofnanir, sem koma kunna í þeirra stað.

39. gr.

    Þegar jörð er gerð að ættaróðali, skal skylt að láta fylgja henni hlunnindi og annað það, er jörðinni hefur fylgt og jarðeigandi á, enn fremur afurðir, sem framleiddar eru á jörðinni og eru nauðsynlegar við búreksturinn, svo sem áburð, hey o. fl. Jarðeigandi skal auk þess láta fylgja jörðinni skjöl, er varða jörðina frá fyrri tíð og eru í hans vörslu, einnig myndir og muni, er hafa minningargildi fyrir þá bændur eða bændaætt, er situr eða setið hefur jörðina.

40. gr.

    Nú óskar jarðeigandi að gera jörð sina að ættaróðali, og skal hann þá afhenda sýslumanni yfirlýsingu þar að lútandi ásamt lýsingu af jörð og jarðarhúsum og skilríki fyrir því, að fullnægt sé ákvæðum 38. gr.
    Þegar sýslumaður hefur sannfært sig um, að fullnægt sé ákvæðum laganna um stofnun ættaróðals, skal hann færa jörðina á skrá um ættaróðul í sérstaka bók, er fylgi embættinu. Enn fremur skal hann senda Búnaðarfélagi Íslands um hver áramót skýrslu um þær jarðir, sem gerðar hafa verið að ættaróðali á árinu í umdæmi hans, ásamt staðfestu samriti af gerningi þar að lútandi.
    Búnaðarfélag Íslands skal láta gera fyrirmynd, í samráði við landbúnaðarráðuneytið, að gerningi, þar sem fram sé tekið, auk þess sem áður er tilgreint, þáverandi fasteignamat jarðarinnar, jarðarverð sér og húsaverð sér, svo og tölur, er sýni stærð ræktaðs lands og ræktanlegs, meðaltal af afrakstri jarðarinnar síðustu 3 árin, hlunnindi og aðra aðstöðu til búrekstrar.
    Verði misbrestur á, að stjórn Búnaðarfélags Íslands berist þau gögn, er að framan greinir, skal stjórn félagsins krefjast, að úr því verði bætt.

41. gr.

    Allar tryggingar, sem stofnað hefur verið til vegna ættaróðalsins eða þess, sem því fylgir, tilheyra óðalinu ásamt skaðabótum, sem greiddar eru samkvæmt þeim.

42. gr.

    Nú hefur bóndi gert jörð sína að ættaróðali, og eiga þá skylduerfingjar hans kröfu til þess, að viðtakandi (óðalserfingi) greiði fráfaranda eða búi hans fjárhæð sem svarar hálfu fasteignamati jarðarinnar.
    Frá þessari greiðslu ber að draga áhvílandi veðskuldir, er viðtakandi tekur að sér.

43. gr.

    Eignir óðalsbónda og konu hans, aðrar en ættaróðalið og fylgifé þess, erfast samkvæmt ákvæðum erfðalaga.

44. gr.

    Skylt er þeim, sem óðal hlýtur, að lofa fyrrverandi óðalsbónda og konu hans, ef með þarf, að dveljast á óðalsjörðinni meðan þau kjósa, enda sé honum það ekki um megn.
    Rísi ágreiningur um þetta atriði, sker sýslumaður úr.

45. gr.

    Erfðafjárskattur greiðist ekki af ættaróðali eða fylgifé þess við afhendingu óðalsins til erfingja eða viðtakanda.

46. gr.

Jarðeigandi og aðrir geta ánafnað ættaróðali fylgifé, svo sem kvikfénað, verkfæri, húsmuni eða annað, og er það þá fylgifé óðalsins, sem skylt er að halda við og endurnýja. Jarðræktarstyrkur, byggingarstyrkur og aðrir opinberir styrkir, sem veittir eru til umbóta á óðalsjörðum, verða eign óðalsins.

47. gr.

    Heimilt er eiganda ættaróðalsins, að fengnu samþykki skv. 12. gr. laga þessara að skipta því milli erfingja í tvö eða fleiri býli, enda fullnægi hin nýju býli ákvæðum 38. greinar.
    Þegar skipti eru ákveðin, skal gera landamerki milli hinna nýju ættaróðala, svo sem þörf krefur. Skjöl og minjagripir, sem til eru, tilheyra gamla óðalinu.

48. gr.

    Heimilt er óðalsbónda að taka lán með veði í óðalinu til húsabóta eða annarra varanlegra umbóta á jörðinni í Stofnlánadeild Búnaðarbanka Íslands, í Orkusjóði og Lífeyrissjóði bænda, samkvæmt þeim reglum, er um slík lán gilda á hverjum tíma.

49. gr.

    Þegar eigendaskipti verða á óðalsjörð, skal kveðja til úttektarmenn hreppsins.
    Úttektarmenn skulu færa í úttektarbók lýsingu á jörðinni, mannvirkjum hennar og fylgifé, svo að auðvelt sé að gera sér grein fyrir ástandi jarðarinnar og öðru, er henni fylgir.
    Verði ágreiningur um afhendingu ættaróðals, sem úttektarmenn geta ekki jafnað, getur hvor aðili um sig krafist yfirúttektar og fer um það samkvæmt 44. gr. ábúðarlaga.

50. gr.

    Nú krefst skuldheimtumaður, að gerð sé aðför í ættaróðali vegna áhvílandi veðskulda eða opinberra gjalda af eigninni, og skal sýslumaður þá tilkynna óðalseiganda um kröfuna með símskeyti eða á annan jafntryggan hátt. Geti óðalseigandi ekki innan mánaðar fullnægt skuldheimtumanni, svo að hann taki kröfuna aftur, skal sýslumaður þá þegar kveðja til fundar þá, er vegna frændsemi koma til greina sem erfingjar óðalsins, eða forráðamenn þeirra ásamt óðalseiganda með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu, Skuldheimtumanni eða umboðsmanni hans ber að koma á slíkan fund. Á fundinum skal sýslumaður hlutast til um, að ákveðið sé, hver taki við óðalinu og taki að sér aðkallandi greiðslur.
    Nú vill enginn af hlutaðeigendum taka við jörðinni, og skal þá sýslumaður selja hana með tilheyrandi fylgifé, enda hafi hlutaðeigandi hreppur hafnað kaupum á jörðinni.

51. gr.

    Eigi má gera aðför í ættaróðali eða selja það til lúkningar skuldum öðrum en áhvílandi veðskuldum eða opinberum sköttum, er hvíla á eigninni sjálfri. Sama gildir um fylgifé óðalsins.

52. gr.

    Þegar óðalsbóndi bregður búi eða deyr og hefur ekki ráðstafað óðalsréttindum, skal sýslumaður, sbr. þó 56. gr., kveðja til fundar þá, er næstir standa til að erfa óðalið, og skal þar tekin ákvörðun um, hver tekur við því, eða ákveða annan fund síðar, ef það telst nauðsynlegt.
    Nú treystist enginn, sem rétt hefur til óðalsins, að taka við því, og skal þá sýslumaður ráðstafa jörðinni ásamt fylgifé hennar sem ættaróðali í samráði við fráfarandi óðalseiganda eða maka hans, ef á lífi eru, annars sýslunefnd. Söluverð jarðarinnar má ekki fara yfir fasteignamatsverð hennar, en skal þó ekki vera lægra en áhvílandi veðskuldir og greiðist með jöfnum afborgunum á 10 árum.

53. gr.

    Nú tekur maður af annarri ætt við ættaróðalinu, og falla þá minjagripir ættarinnar til erfingja fráfarandi óðalsbónda ásamt andvirði jarðarinnar að frádregnum veðskuldum og kostnaði.

54. gr.

    Ættaróðal og fylgifé þess gengur óskipt til eftirgreindra aðila og í þessari röð, ef óðalseigandi hefur ekki gert aðrar ráðstafanir:
     a)      Það hjóna, er lengur lifir, heldur réttinum, meðan það lifir.
     b)      Til barna þess hjónanna, sem óðalsréttinn stofnaði eða erfði. Á sama hátt fá kjörbörn óðalsrétt.
     c)      Til barnabarna óðalsbónda, systkina hans og barna þeirra.

55. gr.

    Foreldrar koma sér saman um, hvert af börnum eða fjarskyldari erfingjum, að börnum frágengnum, skuli erfa óðalið. Þessi ráðstöfun skal tilkynnt sýslumanni ekki siðar en þegar óðalsbóndi er fullra 60 ára, og skal sýslumaður hlutast til um, að þessi ákvörðun sé gerð í viðurvist hans.
    Verði hjón eigi ásátt um, hvert af börnunum skuli hljóta réttinn, skal það hjónanna, er erfði óðalið, ráða viðtakanda.
    Sé engin ákvörðun tekin, skal skiptafundur ákveða viðtakanda eða viðtakendur, ef heimilt er að skipta jörðinni, sbr. 47. gr., og sitji það barn eða þau börn fyrir, sem hafa að staðaldri unnið með foreldrum sínum á jörðinni og eru líklegust til að stunda þar áframhaldandi búskap. Náist eigi samkomulag, sker skiptaráðandi úr.

56. gr.

    Þegar svo stendur á, að óðalserfingi hefur ekki náð lögaldri, er skipti fara fram, skal fjárráðamaður hans byggja jörðina öðrum um stundarsakir, óski erfingi eða fjárráðamaður fyrir hans hönd ekki að taka jörðina til ábúðar. Á umráðamanni (eftirlifandi maka, óðalserfingja eða lögráðamanni) hvíla sömu skyldur gagnvart óðalinu og á óðalsbónda, meðan hann fer með það. En hafi óðalseigandi ekki tekið jörðina til ábúðar, þegar hann er 26 ára gamall, skal sýslumaður ráðstafa henni til næstu erfingja, sbr. 52. gr.
    Óski ekkert barnanna að nota óðalsréttinn og nytja jörðina áfram, þá er foreldrum heimilt að ánafna hana fósturbarni. Nú er óðalsbóndi eða kona hans síðasti maður, er erfðarétt hefur til óðalsins, eða enginn af þeim, sem rétt hefur til óðalsins, treystist til að taka við því, er þau bregða búi eða að þeim látnum, og er þá óðalsbónda og maka hans heimilt að gefa óðalið, enda verði það ættaróðal þiggjanda.

57. gr.

    Nú deyr það hjónanna, er óðalsréttinn erfði, barnlaust, enda hafi hjónin ekki tekið kjörbarn, og hafa þá næstu erfingjar rétt til að taka við óðali, þó ekki fyrr en að einu ári liðnu frá andláti óðalseiganda.
    Slíti óðalseigandi og kona hans samvistum, heldur það hjónanna óðalinu, sem erfði það.

58. gr.

    Enginn óðalseigandi getur átt nema eitt ættaróðal. Nú erfir maður fleiri en eitt ættaróðal, og er honum þá heimilt að velja milli þeirra, en sá, er næstur stendur til arfs, tekur við hinu.
    Við ákvörðun á búshluta maka og erfðahlutum erfingja, skal telja óðal á því verði, sem viðtakanda þess ber að gjalda fyrir það samkvæmt 42. gr.
    Ákvæði erfðalaga um skylduarf eru því ekki til fyrirstöðu, að óðalsbóndi ráðstafi óðali til eins erfingja samkvæmt því, sem nánar greinir í þessum kafla, en andvirði óðalsins samkvæmt 42. gr. rennur í búið.

59. gr.

    Óðalsbóndi fyrirgerir óðalsrétti sínum, ef hann:
     a)      Greiðir ekki samningsbundna vexti og afborganir af þeim skuldum, sem á ættaróðalinu hvíla, svo að það leiði til kröfu um sölu, sem hann getur ekki afstýrt.
     b)      Telur sér heimili annars staðar en á ættaróðalinu eða hættir að reka búskap, sbr. þó 56. gr.
     c)      Ef hann að áliti sýslunefndar, enda skal leitað umsagnar viðkomandi hreppsnefndar, og jarðanefndar situr óðalið svo illa, að það mundi varða útbyggingu eftir ábúðarlögum.

60. gr.

    Þegar óðalsbóndi verður að bregða búi vegna elli, vanheilsu eða af öðrum þeim ástæðum, sem valda því, að honum er ókleift að halda áfram búskap, er landbúnaðarráðherra heimilt að leysa óðalið frá óðalsákvæðum, ef engir þeirra ættingja, sem rétt hafa til óðalsins, vilja taka við því til ábúðar, enda mæli sýslunefnd, Búnaðarfélag Íslands og jarðanefnd með þeirri ráðstöfun. Samþykki landbúnaðarráðherra lausn óðals frá óðalsákvæðum, er óðalsréttarhafa heimilt að selja það við því verði og þeim kaupanda, er hann kýs, enda hafi þeir, sem forkaupsrétt eiga að lögum, hafnað honum.

61. gr.

    Brot gegn lögum þessum varða sektum allt að kr. 100 000.00. Mál út af brotum gegn lögum þessum skulu sæta meðferð opinberra mála.

62. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.
    Jafnframt falla úr gildi lög nr. 40/1948, nr. 54/1967 og I.–VII. kafli laga nr. 102/1962.


Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.

    Búnaðarþing 1971 samþykkti ályktun um að fela Búnaðarfélagi Íslands að hlutast til um við landbúnaðarráðherra að skipa nefnd, til þess að endurskoða eftirtalin lög:
     1.      Lög um kauprétt á jörðum nr. 40 frá 5. apríl 1948.
     2.      Ábúðarlög nr. 36 29. mars 1961.
     3.      Lög um ættaróðul, ættarjarðir, erfðaábúð og sölu þjóð- og kirkjujarða nr. 102 21. desember 1962.
     4.      Lög um Jarðeignasjóð ríkisins nr. 54 27. apríl 1967.
    Hlutverk þeirrar nefndar, sem skipuð yrði, skyldi vera að gera frumvarp til nýrra laga um framangreind efni eða breytingartillögur á gildandi lögum, þar sem þess yrði meðal annars gætt, að aðstaða sveitarfélaga og einstaklinga búsettra innan þeirra við að ná og halda eignar- og umráðarétti á landi innan viðkomandi sveitarfélaga, yrði tryggð sem best, einnig að ábúðar- og erfðaábúðarlög verði gerð einföld og réttlát í framkvæmd.
    Hinn 18. ágúst 1971 skipaði landbúnaðarráðherra nefnd til þess að starfa að þessu verkefni. Nefndina skipuðu Ásgeir Bjarnason, alþingismaður, formaður, Sveinbjörn Dagfinnsson, skrifstofustjóri, og Árni Jónasson, fulltrúi. Dr. juris Gaukur Jörundsson, prófessor hefur verið nefndinni til ráðuneytis við samningu frumvarps þessa.
    Nefndin hefur haldið marga fundi og átt viðræður við ýmsa varðandi viðfangsefni sitt. Meðal annarra búnaðarmálastjóra, formann Stéttarsambands bænda, framkvæmdastjóra Sambands sveitarfélaga, skipulagsstjóra, skógræktarstjóra, auk viðræðna við ýmsa bændur og sveitarstjórnarmenn.
    Nefndin hefur aflað sér upplýsinga um meðferð jarða og fasteigna utan þéttbýlissvæða í Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
    Þá hefur nefndin farið yfir núgildandi ábúðarlög, lög um ættaróðul, ættarjarðir, óðalsrétt og erfðaábúð. Nefndin kynnti sér hver væri fjöldi skráðra ættaróðala og ættarjarða við öll sýslumannsembættin. Niðurstaða þeirra athugana er sú, að mjög fáir bændur hafa gert jarðir sínar að ættaróðulum, aðrir en þeir, sem keypt hafa jarðir af ríkinu, en þá er það skylda.
    Allmörg dæmi eru þess, að bændur, sem eiga óðalsjarðir, hafa fengið jarðir sínar leystar undan ákvæðum óðalslaga samkvæmt heimild í lögum nr. 18 frá 1968. Ættarjarðir eru sárafáar skráðar, þó að vitað sé að mikill fjöldi jarða hefur verið lengur í eigu eða ábúð sömu ættar en 75 ár, og við athugun nefndarinnar upplýstist, að andstaða er meðal eigenda fjölda jarða, að þær verði gerðar að ættarjörðum.
    Að fengnum upplýsingum og eftir athugun á gildandi lagaákvæðum um framanskráð efni var ákveðið að leitast við að stytta ábúðarlögin frá 1961, auk efnisbreytinga, sem á þeim yrðu gerðar. Ákvæði um ættaróðul, óðalsrétt og erfðabúð halda sér lítið breytt, en kaflinn um ættarjarðir er felldur úr gildi.
    Ákveðið var að taka efni það, sem fjallað hefur verið um saman í tvo lagabálka, sem bera heitin Jarðalög og Ábúðarlög. Í Jarðalögunum eru nýmæli í íslenskum lögum um meðferð á landi og eignarhald á jörðum, landi og landspildum.
    Í Jarðalög eru tekin ákvæði um jarðanefnd hvernig skuli fara með hvers konar aðilaskipti að umráðum yfir fasteignum og fasteignaréttindum, auk þess ákvæði um forkaupsrétt að jörðum, jarðir í opinberri eign, Jarðeignasjóð og óðalsjarðir.
    Frumvarp til jarðalaga var lagt fram á Alþingi árið 1973, en hlaut ekki afgreiðslu.
    Hinn 28. ágúst 1975 skipaði landbúnaðarráðherra að nýju nefnd til að fjalla um frv. til jarðalaga og frv. til ábúðarlaga.
    Nefndina skipuðu:
    Árni Jónasson, erindreki, Ásgeir Bjarnason, alþm., Ingi Tryggvason, alþm., Pálmi Jónsson, alþm., Stefán Valgeirsson, alþm., Steinþór Gestsson, alþm. og Sveinbjörn Dagfinnsson, ráðuneytisstjóri.
    Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu frá því, sem var, þegar það var lagt fram árið 1973.

Stutt yfirlit yfir afskipti ríkisvalds og sveitarstjórna af eignahreyfingum á jörðum, lóðum og lendum, utan skipulagðra svæða í Noregi, Svíþjóð og Danmörku,
sem fylgdi frumvarpinu 1973.

NOREGUR

    Samkvæmt lögum, sem sett voru á tímabilinu frá árinu 1909 til 1920 þarf leyfi landbúnaðarráðuneytisins til þess að eigendaskipti geti orðið að landeignum utan skipulagðra svæða og gildir þar jafnt, hvort um er að ræða skóglendi, mýrlendi, fjalllendi eða ræktað land. Ákvæðum þessara laga hefur verið beitt allt fram til þessa dags og þannig, að hvenær sem eigendaskipti eru áformuð að landi eða bújörð verður að leggja inn beiðni um heimild til eigendaskiptanna, áður en þau eru endanlega framkvæmd. Í norskum lögum frá 18. mars 1955, jarðalögum, er ákvæði um forkaupsrétt ríkisins að bújörðum, skóglendum og fjalllendum, sem áformað er að setja eða að láta af hendi á annan hatt. Tilgangur þessara lagaákvæða er sá að reyna að tryggja það, að land verði nýtt á sem hagkvæmastan hátt fyrir þjóðfélagið og þá, sem hala afkomu sína af landbúnaði. Enn fremur er það tilgangurinn að gæta þess svo sem tök eru á að hafa hamlandi áhrif á miklar verðhækkanir lands. Mörg dæmi eru þess, að norska landbúnaðarráðuneytið hafi neitað að heimila eigendaskipti að jörð, þar sem að mati ráðuneytisins hefur verið um of hátt kaupverð að ræða. Slíkar neitanir byggjast gagngert á því að gera það, sem tök eru á, til þess að halda verðlagi lands niðri. Slík afstaða er m. a. rökstudd með því, að norska ríkið hafi aukið verðmæti lands með framlögum og eigin framkvæmdum.
    Beiðni um eigendaskipti að landi, þar sem ástæða er til að ætla að áformað sé að skipta landi niður í hagnaðarskyni, t. d. í sumarbústaðalóðir, er að jafnaði neitað. Norska ríkið er ekki skylt að kaupa land, sem það leyfir ekki sölu á. Ákvæði er í lögum um það, að engri þeirri jörð, sem hægt er að nota til landbúnaðar megi skipta niður, nema að áður fengnu sérstöku samþykki landbúnaðarstjórnar viðkomandi héraðs.
    Algengt er, að norska ríkið noti forkaupsréttarheimild sína og kaupi þær jarðir og landspildur, sem til sölu eru eða eigendaskipti eru áformuð á af öðrum ástæðum. Slíkt er nær undantekningarlaust gert í hagræðingarskyni, til þess að fella saman jarðir í stærri einingar eða á annan hátt að auka hagkvæmni við landbúnað, og eru þessar eignir því að öllu jafnaði seldar aftur innan tiltölulega skamms tíma frá því að ríkið eignaðist þær.
    Til þess að annast kaup og sölu fasteigna og lands í þessu skyni starfar sérstakur sjóður, er Norðmenn kalla Jordfond og fær hann fjárveitingu eftir því, sem þörf krefur á fjárlögum hvers árs.
    Fyrir Stórþinginu liggur nú frumvarp að lögum um leyfi, til þess að eignast fasteign (konsesjonsloven). Tilgangurinn með þessu lagafrumvarpi er, að lögin komi í stað þeirra laga, sem áður hafa gilt um eigendaskipti að fasteignum á dreifbýlissvæðum og taka nánari afstöðu til þarfa landbúnaðarins, þéttbýlissvæða, almennrar náttúruverndar og útilífsáhugamála. Í því eru ákvæði um, að ekki geti orðið eigendaskipti að fasteignum utan skipulagðra svæða, nema með leyfi ráðuneytisins, og jafnframt er í frumvarpinu ákvæði um forkaupsrétt ríkis og sveitarfélaga að þeim fasteignum, sem til sölu eru eða eigendaskipti eru áformuð á. Í frumvarpinu er tekið fram, að leyfi til eigendaskipta skuli ekki veitt, þar sem ástæða þykir til að ætla, að kaupandinn ætli sér fyrst og fremst að afla eignarinnar til þess að ávaxta á þann hátt fé og heldur ekki ef ástæða er til þess að ætla að sá, sem eignina ætlar að kaupa eða yfirtaka, ætli sér með því að hafa fjárhagslegan ávinning af að selja eignina aftur eða hluta af henni innan skamms tíma.

SVÍÞJÓÐ

    Í Svíþjóð hafa verið í gildi lög allt frá árinu 1916, sem hafa í för með sér vissar takmarkanir á rétti manna til þess að hafa frjáls eigendaskipti að bújörðum. Nú gilda um þetta efni lög nr. 290 frá 1965. Í 1. gr. þeirra laga segir, að ekki megi verða eigendaskipti að fasteign, sem sé skattlögð sem jörð, nema með leyfi viðkomandi landbúnaðarráðs, ef um er að ræða kaup, skipti eða gjöf, viðbót við fyrri eign eða skipti út úr eign. Landbúnaðarráð eru lögboðin í öllum lénum Svíþjóðar.
    Undantekningar eru frá þessu ákvæði laganna, m. a. ef eignin er keypt af ríki eða sveitarfélagi, ef eignin er keypt á nauðungaruppboði, eða þéttbýli er skipulagt á henni. Í lögunum segir, að umsókn um leyfi til eigendaskipta sé heimilt að neita, þegar ástæða er til að ætla, að aðaltilgangurinn með kaupunum sé ekki sá að reka landbúnað á eigninni. Enn fremur segir í lögunum, að þegar ríkið neitar um leyfi til eigendaskipta að fasteign, þá sé það skylt, ef seljandinn hefur rekið þar landbúnað, að kaupa eignina á því verði, sem seljandinn átti kost á að fá fyrir eignina, en skyldan nær ekki til þess að kaupa, ef verðið telst óeðlilega hátt.
    Framkvæmd þessara laga er þannig, að þegar kaup á fasteignum eru áformuð, þá eru umsóknir lagðar til landbúnaðarráðs viðkomandi léna, sem eru undir stjórn landbúnaðarráðuneytisins en fjallað er um leyfin í landbúnaðarráðuneytinu. Þegar neitað er um leyfi til sölu á jörð af hagkvæmnisástæðum, er venja að ríkið kaupi slíkar eignir. Þegar kaup virðast áformuð í því skyni að hafa af því sérstakan fjárhagslegan ávinning, þá er það meginregla, samkvæmt upplýsingum þeirra, sem hafa með framkvæmd laganna að gera, að neita um leyfi til sölu.
    Takmark laga þessara er að auka hagkvæmni í landbúnaði og í nýtingu lands. Aðalreglan er sú, að leyfi eru veitt til sölu jarða, og meira frjálsræði ríkir nú á þessu sviði, heldur en var. Samkvæmt ársskýrslu sænska landbúnaðarráðuneytisins fyrir árið 1970 yfir störf landbúnaðarráða landsins, hefur á því ári verið neitað um leyfi til þess að selja jarðir eða fasteignir utan þéttbýlissvæða í 543 tilvikum. Þess hefur verið gætt, áður en leyfi er veitt til sölu eða eigendaskipta að fasteign, að hafa samband við viðkomandi sveitarfélag og athuga, hvort það samþykkir þá ráðstöfun og sveitarfélög eiga síðan 1968 forkaupsrétt að slíkum eignum, sem til sölu eru. Yfirvöld hafa heimild til að hafa áhrif á söluverð lands samkvæmt 4. gr. laga nr. 290/1965, og í greinargerð með þeim lögum er tekið fram, að sérstök ástæða sé til að neita um kaup á landi til annarra en þeirra, sem vinna við landbúnað sem aðalstarf, einkum þegar ljóst er, að um sé að ræða „spekulations eða kapitalplacerings“ kaup, sem þar að auki, vegna hinna verðhækkandi áhrifa, sem slík kaup hafa á land, samrýmast ekki frumhagsmunum þjóðarheildar. Eins og áður kemur fram, er reynt eftir bestu getu að hafa áhrif á aukna hagkvæmni í nýtingu lands og að fella saman lendur og skákir í hagræðingarskyni, og flest öll kaup ríkisins á landi byggjast á þeim rökum. Samkvæmt ársskýrslu landbúnaðarráðuneytisins var eign sænska ríkisins í landbúnaðarfasteignum í ársbyrjun 1972 20 023 ha. akurlendis, 120172 ha. af skógi, og heildarverðmæti þessa lands er metið á 118613 þús. s. kr. Á árinu 1972 keypti ríkið í 1552 tilfellum land, samtals 8790 ha. akurlendis og 40 699 ha. af skógi, en matsverð þessara eigna er 63 111 þús., en kaupverð 116 538 000.00. Á sama ári áttu sér stað 2623 sölur á ríkiseignum, og voru seldir 10 405 ha. af akurlendi og 47 108 ha. af skógi. Matsverð þessara eigna var 73 004 000 s. kr. en söluverðið var 127 785 000 s. kr. Í árslok 1972 var heildareign ríkisins í landbúnaðarfasteignum þessi: Akurlendi 18 268 ha., skóglendi 110 847 ha., og er heildarmatsverð þessara eigna 106 980 000 s. kr.
    Tími sá, sem líður frá því að ríkið eignast land og þar til það hefur verið selt aftur, er að jafnaði 2 ár, akurlendi, en 3 ár, skóglendi.
    All mörg dæmi eru þess, að ríkið kaupi eignir af bændum, sem þurfa að yfirgefa eignir sínar og fara í önnur störf. Sænska ríkið kaupir einnig af hliðstæðum ástæðum og Jarðeignasjóður gerir hér.

DANMÖRK

    Samkvæmt dönskum lögum er skylt að reka bú á bújörðum, en landbúnaðarráðuneytið getur upphafið þá skyldu, þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi.
    Eigi að leigja jörð til lengri tíma en 15 ára, þarf samþykki landbúnaðarráðuneytisins varðandi tímalengd samningsins.
    Skilyrði fyrir því að geta fengið jörð eða hluta af jörð til umráða skv. afsali eða leigusamningi, er m. a. að viðkomandi sé minnst 20 ára gamall, taki sér fasta búsetu á viðkomandi jörð og hafi landbúnaðarstörf að aðalatvinnu.
    Sé þessu skilyrðum ekki fullnægt, er því aðeins hægt að fá ráð yfir jörð eða jarðarhluta að landbúnaðarráðherra veiti leyfi til þess.
    Slíkt leyfi skal að jafnaði ekki veita, ef ástæða er til að ætla, að stefnt sé að því að ná umráðum yfir eign til þess að ávaxta á þann hátt fé, ef mikið ósamræmi er milli kaupverðs eignar og raunverðs, ef eignin telst óheppileg til sjálfstæðs búrekstrar og jörðinni yrði betur ráðstafað til að bæta rekstur, sem þegar er fyrir á svæðinu.
    Félagssamtök, stofnanir, jafnt opinberar sem einkastofnanir geta ekki fengið ráð á jörðum eða jarðahlutum, nema að fengnu samþykki landbúnaðarráðuneytisins.
    Í lögum um öflun fasteigna til frístunda og útilífsáhugamála er ríkinu veitt heimild til að ráðstafa árlega allt að 100 milljónum danskra króna til að kaupa sjálft jarðir og jarðarhluta, eða veita sveitarfélögum og félagasamtökum lán í sama skyni.

Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

    Á undanförnum árum hefur eftirspurn eftir landi til annarra nota en landbúnaðar farið stórvaxandi. Einkum hafa jarðir verið keyptar háu verði, þar sem góð aðstaða er til að setja niður sumarbústaði, eða eftirsóknarverð hlunnindi fylgja jörðum, svo sem veiði.
    Verð slíkra jarða er þegar orðið svo hátt, að sjaldnast er viðráðanlegt fyrir bændur að kaupa þær, og reynist oft fullerfitt fyrir sveitarfélög, þrátt fyrir að þau eiga lögboðinn forkaupsrétt.
    Afleiðingin er því sú, að margar vildisbújarðir hafa verið skákaðar niður, en það hefur torveldað eðlilegan búrekstur, og á mörgum hefur föst búseta lagst niður, vegna jarðarkaupa félagssamtaka eða manna, sem ekki hyggja á búskap.
    Rétt verður að teljast að gefa þéttbýlisbúum og öðrum, sem eftir sækjast, kost á landspildum til ræktunar og útivistar og til að reisa sumardvalarhús.
    Reynslan sýnir hins vegar nú þegar, að brýn þörf er á að fylgjast með slíkum ráðstöfunum lands og hafa áhrif á hvar og hvernig landi er ráðstafað á þann hátt. Að öðrum kosti vofir yfir stórfelld röskun á búsetuaðstöðu fólks á dreifbýlissvæðum umfram það, sem þegar er orðið og óeðlileg verðhækkun lands.
    Lögum þessum er m. a. ætlað að veita byggðarlögunum meira áhrifavald í þessu efni, styrkja aðstöðu bænda, bændaefna og sveitarfélaga til jarðakaupa, skapa aðstöðu til að fylgjast með öllum ráðstöfunum fasteigna og fasteignaréttinda, utan skipulagðra þéttbýlissvæða og hafa áhrif á verðlag þeirra.

Um 2. gr.

    Greinin þarfnast ekki skýringa.

Um 3. gr.

    Lögunum er ætlað að ná til alls lands og landsréttinda utan skipulagðra þéttbýlissvæða, en með því er átt við svæði, sem hafa t. d. sameiginlega gatnagerð, holræsagerð o. s. frv., sem unnin er af viðkomandi sveitarstjórn.

Um 4. gr.

    Jarðanefndum er ætlað að starfa í hverri sýslu. Jafnframt leggist niður landnámsnefndir skv. 1. nr. 45/1971. Verksvið jarðanefnda er mun viðtækara en verksvið landbúnaðarnefndanna. Búseta jarðanefndarmanna innan starfssvæðis þeirra ætti að tryggja þekkingu á staðháttum og hagsmunum byggðarlaganna.

Um 5. gr.

    Jarðanefnd er ætlað að fylgjast með og halda skráðum öllum ráðstöfunum fasteigna og fasteignaréttinda, hafa áhrif á, hvaða landsvæði verða tekin til útivistar og ræktunar og fylgjast með búsetu á jörðum.

Um 6. gr.

    Með þeim undantekningum, sem upp eru taldar í 1.–5. tölulið er skylt að afla samþykkkis jarðanefndar og sveitarstjórnar til hvers konar ráðstöfunar fasteigna, og til þess að halda skráningu réttri, er tilkynningaskyldan undantekningarlaus. Auk þess er greininni ætlað að hafa hamlandi áhrif á fasteignaviðskipti, sem teljast verða óhagstæð viðkomandi sveitarfélagi.

Um 7. gr.

    Rétt þykir að gefa jarðanefnd og sveitarstjórn nokkurn tíma til að afgreiða erindi, sem berast, m. a. má reikna með að fara þurfi á þann stað, sem erindið varðar.

Um 8. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.

Um 9. gr.

    Til þess að fyrirbyggja eftir föngum ólögmætar ráðstafanir skv. lögunum er óheimilt að þinglýsa skjölum, nema þau beri með sér, að jarðanefnd hafi fjallað um þau.

Um 10. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.
Um 11. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.

Um 12. gr.

    Rétt þykir að hafa meiri gát á um afnot landbúnaðarlands, skiptingu þess og sameiningu jarða eða stofnun nýbýla, heldur en verið hefur. Þess vegna þurfa slík mál nú að fara fyrir fleiri aðila en áður, til þess að fá afgreiðslu.

Um 13. gr.

    Mörg dæmi eru þess, að landi hefur verið skipt út úr jörðum, án þess að það hafi síðan verið nýtt á eðlilegan hátt til búrekstrar, en oft orðið til þess að rýra búrekstraraðstöðat þeirrar jarðar, sem land var tekið frá, og er greininni ætlað að bæta úr erfiðleikum, sem af slíku skapast.

Um 14. gr.

    Sameign ábúanda og annarra að jörð getur, vegna ólíkra hagsmuna og sjónarmiða, leitt til margvíslegra erfiðleika. Rétt þykir að veita þeim, sem jörð situr, möguleika á að komast út úr þeim erfiðleikum, sem sameign getur valdið, með því að kaupa skv. eignarnámsmati hluti meðeigenda sinna. Sama regla á við þegar fleiri en einn reka bú á jörð sem er í sameign með öðrum, sem ekki reka bú á jörðinni.

Um 15. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.

Um 16. gr.

    Upplýsingaskylda um jarðir auðveldar nauðsynlega gagnaöflun og framkvæmd laga þessara.
Um 17. gr.

    Rétt þykir að gefa nokkurn tíma fyrir landbúnaðarráðuneytið til að athuga þau mál, sem til þess kann að verða skotið eftir meðferð hjá jarðanefndum m. a. getur þurft athuganir á vettvangi.

Um 18. gr.

    Óhjákvæmilegt er í því skyni að tryggja áhrif laga þessarra að veita heimild til að rifta ráðstöfunum, sem gerðar eru á þann hátt, að fyrirmæli laganna eru sniðgengin.

Um 19. gr.

    Talið er að því hagræði og stjórnunarlegur ávinningur, að búnaðarsambönd og jarðanefndir hafi sameiginlegt skrifstofuhald, þar sem þess er kostur. Hagkvæmt verður að telja, með tilliti til afgreiðslu þeirra erinda, sem fyrir jarðanefndir verða lögð, að þær séu staðsettar á sama stað og sýsluskrifstofur.

Um 20. gr.

    Greinin skýrir sig sjálf.

Um 21. gr.

    Greinin kemur í stað 2. gr. laga nr. 40/1948.
    2. mgr. um kauprétt leiguliða sem setið hefur sömu jörð í 10 ár eða lengur er breyting frá því sem nú er.
    Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 40/1948 hefur leiguliði eftir 3ja ára búsetu kauprétt á undan sveitarstjórn.
    Þessi réttur leiguliða eftir tiltölulega skamma búsetu getur leitt til misnotkunar og því er talið rétt að lengja búsetutíma sem leiðir til kaupréttar ábúanda á undan sveitarstjórn. Noti ábúandi sér ekki kaupréttinn, verður forkaupsréttur sveitarfélags aftur virkur.

Um 22. gr.

    Í greininni er það nýmæli, að eigi að selja eign á nauðungaruppboði, er tilkynningarskylda á fógeta gagnvart forkaupshafa.

Um 23. gr.

    Í greininni er ekki efnisbreyting frá því. sem er í núgildandi lögum, önnur en sú, að frestur, sem sveitarstjórn hefur nú til þess að svara forkaupsréttarboði, er 15 dagar en frestur þessi er lengdur í fjórar vikur. Nauðsyn var talin til að lengja frest sveitarstjórna svo þeim gæfist rýmri tími til fjármagnsútvegunar og annarra athugana vegna kaupa. Rétt verður að telja að binda afsal forkaupsréttar við nafn.

Um 24. gr.

    Greinin fjallar um sama efni og 6. gr. laga nr. 40/1948.

Um 25. gr.

    Greinin er nýmæli og ætluð til þess að fyrirbyggja, að sveitarstjórnum sé skákað frá í að nota kaupréttarheimild sína, vegna þess að verð sé sett mjög hátt á eignir, jafnvel án þess að greiðsla skv. því sé áformuð.

Um 26. gr.

    Í greinina er bætt við frá því, sem nú er í 4. gr. l. nr. 40/1948, að forkaupsréttur verður ekki virkur, ef eigandi selur maka sínum eða barnabarni. Skv. 2. tölulið eiga sveitarfélög ekki forkaupsrétt gagnvart sölum ríkissjóðs, enda á slík sala sér aðeins stað samkvæmt lögum. Einnig er bætt við ákvæði um skyldur viðtakanda til að reka bú á jörðinni.

Um 27. gr.

    Rétt þykir af hagkvæmnisástæðum að hafa sem mest af því, er varðar jarðir og land í ríkiseign á einni hendi. Þess vegna er einnig gert ráð fyrir, að jarðadeild ráðuneytisins fari með málefni jarða og lendna, í ríkiseign, nema annað sé sérstaklega ákveðið.

Um 28. gr.

    Með almennri lagaheimild til að selja sveitarfélögum jarðir sparast að setja heimildarlög um slíkt hverju sinni.
    Í lögum eru ekki ákvæði um leigu lands eða jarða í ríkiseign, önnur en um leigu til búrekstrar. Rétt þykir að setja í lög ákvæði um hámarkstímalengd samninga.

Um 29. gr.

    Greinin fjallar um sama efni og 47. gr. 1. nr. 102/1962, en auknum skilyrðum þarf að fullnægja, svo jörð sé seld ábúanda.

Um 30. gr.

    Nú eru í gildi lög um Jarðeignasjóð nr. 54/1967, með breytingum frá 13. mars 1972. Þau lög eru nú felld inn í jarðalögin með nokkrum breytingum.

Um 31. gr.

    Í greinina hefur verið bætt tveimur nýjum töluliðum, 6., 7. og 8., frá því, sem er í gildandi lögum, til þess að rýmka heimild Jarðasjóðs til að kaupa jarðir í því skyni að stuðla að framkvæmd laga þessara.

Um 32. gr.

    Í greinina er sett ákvæði um heimild Jarðasjóðs til þess að lána sveitarfélögum til jarðakaupa, ef þau nota sér forkaupsrétt.

Um 33. gr.

    Í 34. gr. er sú efnisbreyting frá því, sem er í núgildandi lögum, að hámarksverð jarða, sem sjóðurinn kaupir, er ekki lengur bundið við fasteignamat, heldur opnast möguleiki, að verðið fari hærra, ef raunverulegt verðmæti jarðarinnar er meira. Auk þess er nú hægt að ljúka kaupum með samningum milli kaupanda og seljanda, en samkvæmt lögum var skylt að láta meta jarðir.
    Gert er ráð fyrir að hækka framlag til Jarðasjóðs um helming frá því, sem nú er. Aðrar verulegar efnisbreytingar eru ekki í kaflanum um Jarðasjóð frá því sem nú gildir.

Um 34. gr.

    Greinin er um sama efni og 6. gr. laga nr. 54/1967, sbr. 3. gr. laga nr. ll/1972.

Um 35. gr.

    Greinin er um sama efni og 7. gr, laga nr. 54/1967, í stað Landnáms ríkisins kemur nú Jarðanefnd.

Um 36. gr.

    Greinin er hliðstæð 8. gr. laga nr. 54/1967, en í stað þess að fjármálaráðuneytið tilnefni mann í nefnd, til að meta kaupverð jarða, kemur nú landbúnaðarráðuneytið.

Um 37. gr.

    Greinin fjallar um sama og 10. gr. 1. nr. 54/1967, en gert er að auki ráð fyrir að Jarðasjóður greiði fjallskil.

Um 38. gr.

    Greinin er efnislega eins og 1. gr. laga nr. 102/1962.

Um 39. gr.

    Greinin er samhljóða 2. gr. laga nr. 102/1962.

Um 40. gr.

    Greinin kemur í stað 3. gr. l. 102/1962.

Um 41. gr.

    Greinin er samhljóða 4. gr. laga nr. 102/1962.

Um 42. gr.

    Greinin er nokkuð breytt frá 5. gr. laga nr. 102/1962, sem veitir aðeins erfingjum í fyrsta lið kröfu á óðalserfingja við yfirtöku óðals og aðeins á hendur fyrsta viðtakanda eftir að jörð var gerð að ættaróðali.

Um 43. gr.

    Greinin er um sama efni og 6. gr. laga nr. 102/1962.

Um 44. gr.

    Greinin er samhljóða 7. gr. laga nr. 102/1962.

Um 45. gr.

    Greinin er samhljóða 9. gr, laga nr. 102/1962.

Um 46. gr.

    Greinin er upphaf 10. gr. laga nr. 102/1962.

Um 47. gr.

    Greinin er sama efnis og fyrri málsgrein 11. gr. laga nr. 102/1962, en síðari málsgreinar hennar falla niður.

Um 48. gr.

    Upphaf 12. gr. laga nr. 102/1962 fjallar um sama efni. Að öðru leyti er sú grein felld niður.

Um 49. gr.

    Greinin er samhljóða 14. gr. laga nr. 102/1962, nema að síðari hluti 14. gr. er felldur niður.

Um 50. gr.

    Greinin er samhljóða 15. gr. laga nr. 102/1962.

Um 51. gr.

    Greinin er samhljóða 16. gr. laga nr. 102/1962.

Um 52. gr.

    Greinin er samhljóða 17. gr. laga nr. 102/1962.

Um 53. gr.

    Greinin fjallar um sama og 18. gr. laga nr. 102/1962, en breytingar hafa verið gerðar.

Um 54. gr.

    Greinin er samhljóða 19. gr. laga nr. 102/1962.

Um 55. gr.

    Greinin er samhljóða 20. gr, laga nr. 102/1962.

Um 56. gr.

    Greinin er samhljóða 21. og 22. gr. laga nr. 102/1962.

Um 57. gr.

    Greinin er samhljóða 23. gr. laga nr. 102/1962.

Um 58. gr.

    Greinin er samhljóða 24. gr. laga nr. 102/1962.

Um 59. gr.

    Greinin er að mestu samhljóða 25. gr. laga nr. 102/1962.

Um 60. gr.

    Greinin er samhljóða 2. gr. laga nr. 18/1968.