Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir

Þingseta

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2016–2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017–2021, dómsmálaráðherra 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2021–2022. Utanríkisráðherra 2022–2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 2023–2024. Utanríkisráðherra 2024.

Æviágrip

Fædd á Akranesi 4. nóvember 1987. Foreldrar: Gylfi R. Guðmundsson (f. 1956) þjónustustjóri, sonur Jónu Valgerðar Kristjánsdóttur alþingismanns og Fjóla Katrín Ásgeirsdóttir (f. 1957) sjúkraliði. Maki: Hjalti Sigvaldason Mogensen (f. 1984) lögmaður. Foreldrar: Sigvaldi Þorsteinsson og Kristín I. Mogensen. Börn: Sonur (2012) og dóttir (2016).

Skiptinám á vegum AFS í Vínarborg 2005–2006. Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Vesturlands 2007. BA-próf í lögfræði HR 2010. Erasmus-skiptinám við Universität Salzburg vorönn 2011. ML-próf í lögfræði HR 2012.

Lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011–2012. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013–2014. Stundakennari í stjórnskipunarrétti við HR 2013–2015. Aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014–2016. Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 11. janúar 2017 til 27. nóvember 2021 og dómsmálaráðherra 14. mars til 6. september 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 28. nóvember 2021 til 31. janúar 2022. Utanríkisráðherra 1. febrúar 2022 til 14. október 2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 14. október 2023 til 9. apríl 2024. Utanríkisráðherra 9. apríl 2024 til 21. desember 2024. Sérstakur erindreki (e. Special Envoy) framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum síðan febrúar 2025.

Í stjórn Þórs, félags ungra Sjálfstæðismanna á Akranesi, 2007–2010, formaður 2008–2009. Í stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna 2007–2009. Í umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar 2008. Í stjórn Lögréttu, félags laganema við HR, 2009–2010. Ritstjóri tímarits Lögréttu, félags laganema við Háskólann í Reykjavík, 2009–2010. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2018–2025.

Alþingismaður Norðvesturkjördæmis 2016–2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017–2021, dómsmálaráðherra 2019. Utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra 2021–2022. Utanríkisráðherra 2022–2023. Fjármála- og efnahagsráðherra 2023–2024. Utanríkisráðherra 2024.

Utanríkismálanefnd 2025–2026, efnahags- og viðskiptanefnd 2025.

Íslandsdeild NATO-þingsins 2025–2026, þingmannanefnd Íslands og ESB 2025–2026.

Æviágripi síðast breytt 28. apríl 2026.

Æviágrip þingmanna eru almennt ekki uppfærð eftir að þingsetu lýkur, nema leiðrétta þurfi augljósar villur.

Áskriftir