Ingveldur Anna Sigurðardóttir

  • Kjördæmi: Suðurkjördæmi
  • Þingflokkur: Sjálfstæðisflokkur
  • 774-3828

Þingseta

Alþingismaður Suðurkjördæmis síðan júní 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðurkjördæmis febrúar 2023, maí 2025, janúar–febrúar 2026 og apríl 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Æviágrip

Fædd 19. janúar 1997 á Selfossi. Foreldrar: Anna Birna Þráinsdóttir, fædd 25. desember 1967, fyrrverandi sýslumaður, og Sigurður Jakob Jónsson, fæddur 30. ágúst 1956, vélvirki, þau reka nú ferðaþjónustu.

Stúdentspróf frá Fjölbrautaskóla Suðurlands 2016. BA-próf í lögfræði frá HÍ 2020. MA-próf í lögfræði frá HÍ 2022.

Löglærður fulltrúi sýslumannsins á Suðurlandi 2022–2026.

Aðalmaður í Stúdentaráði og formaður Vöku 2019–2020. Annar varaformaður Ungra sjálfstæðismanna 2021–2023.

Alþingismaður Suðurkjördæmis síðan júní 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðurkjördæmis febrúar 2023, maí 2025, janúar–febrúar 2026 og apríl 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2026–, umhverfis- og samgöngunefnd 2026–, efnahags- og viðskiptanefnd 2026.

Æviágripi síðast breytt 16. september 2026.

Áskriftir