Guðmundur Ari Sigurjónsson
Þingstörf og hagsmunaskrá
Þingseta
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2024 (Samfylkingin).
Æviágrip
Fæddur í Reykjavík 12. september 1988. Foreldrar: Edda Gíslrún Kjartansdóttir, fædd 9. mars 1958, grunnskólakennari og Sigurjón Gunnarsson, fæddur 20. desember 1956, húsasmíðameistari. Maki: Nanna Kaaber Árnadóttir, fædd 17. september 1987, íþróttafræðingur og einkaþjálfari. Foreldrar: Árni Emil Bjarnason og Katrín Hulda Júlíusdóttir. Börn: Árni Bergur (2013), Kjartan Kári (2016) og Magnea (2018).
BA-próf í tómstunda- og félagsmálafræði HÍ 2013.
Verkamannastörf 2005–2008. Félagsmiðstöðvarstarfsmaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2008–2017. Forstöðumaður í Selinu á Seltjarnarnesi 2017–2020. Stundakennari í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ 2014 og 2021. Framkvæmdastjóri LifeQuest ehf. 2020–2022. Verkefnastjórnun fyrir Knattspyrnusamband Íslands 2022. Sérfræðingur í Evrópuáætlunum fyrir ungt fólk hjá Rannís 2022–2024.
Formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar 2022–2025.
Í bæjarstjórn Seltjarnarness 2014–2024. Í bæjarráði Seltjarnarness 2018–2024 ásamt öðru fjölbreyttu nefndastarfi fyrir Seltjarnarnesbæ.
Í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga 2018–2024. Í stjórn Vinnumálastofnunar 2022–2025. Fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga í Æskulýðsráði ríkisins 2018–2024.
Fulltrúi Íslands á sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins 2018–2022.
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2024 (Samfylkingin).
Formaður þingflokks Samfylkingar síðan 2025.
Allsherjar- og menntamálanefnd 2025–.
Íslandsdeild Norðurlandaráðs 2025–.
Formaður norrænu þekkingar- og menningarnefndar Norðurlandaráðs 2025–.
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan 2024 (Samfylkingin).
Bókaútgáfa:
- 9 þrep æskulýðsstarfs – Handbók fyrir æskulýðsstarf (2015)
- Frístundir og fagmennska – Kafli um ungmennahús (2017)
- Bootcamp for Youth Workers – Ritstýring og höfundur kaflans „What is Youth work?“ (2019)
Önnur útgáfa:
- More Than One Story – Íslensk þýðing á spili (2014)
- VAXA snjallforrit til að halda utan um þátttöku og nám í æskulýðsstarfi (2019)
- Meðhöfundur á rannsóknarskýrslu um fagvæðingu æskulýðsstarfs í Eistlandi, Ástralíu og á Íslandi: Uppbygging gagnreyndrar þekkingar (2022)
- Meðhöfundur á rannsóknarskýrslu um notkun og notagildi siðareglna í æskulýðsstarfi í Eistlandi, Ástralíu og Íslandi (2022)
- Meðhöfundur á rannsóknarskýrslu um ígrundun sem aðferð til að vinna með siðareglur í æskulýðsstarfi í Eistlandi, Ástralíu og á Íslandi: Hagnýtur leiðarvísir (2022)
Æviágripi síðast breytt 6. janúar 2026.
