Kristján Þórður Snæbjarnarson

Kristján Þórður Snæbjarnarson
  • Kjördæmi: Reykjavíkurkjördæmi suður
  • Þingflokkur: Samfylkingin
  • 856-3466

Þingseta

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2024 (Samfylkingin).

Æviágrip

Fæddur í Keflavík 21. október 1980. Foreldrar: Snæbjörn Kristjánsson, fæddur 29. ágúst 1954, rafiðnfræðingur og Sigurlaug Sigurðardóttir, fædd 21. mars 1958, skrifstofufulltrúi. Maki: Díana Lynn Simpson, fædd 14. mars 1980, leikskólaliði. Foreldrar: Ragnhildur K. Kristinsdóttir Simpson og Jackaray Simpson. Börn: Ragnhildur Ósk (2001), Ilmur Líf (2001) og Snæbjörn (2010).

Rafeindavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík 2001, sveinsbréf í rafeindavirkjun 2002. Rafiðnfræðingur frá HR 2008. Rafeindavirkjameistari 2009. Rekstrariðnfræðingur frá HR 2010. Rafvirkjun frá Tækniskólanum 2021, sveinsbréf í rafvirkjun 2022. Lauk námi í sáttamiðlun hjá Consensus Mediation, samþykkt af Mediatiors' Institute of Ireland, 2022.

Verkamaður hjá Friðþjófi hf. (síðar Samherji hf.) 1998. Rafeindavirki hjá Hátækni 2001–2002. Rafeindavirki hjá ISAL, Rio Tinto í Straumsvík, 2000–2001 og 2002–2011. Framkvæmdastjóri Rafiðnaðarsambands Íslands 2011–2024.

Formaður Félags rafeindavirkja 2008–2011. Formaður Rafiðnaðarsambands Íslands síðan 2011. Í stjórn VIRK starfsendurhæfingarsjóðs 2012–2015. 1., 2. og 3. varaforseti Alþýðusambands Íslands á árunum 2018–2024, að því tímabili undanskyldu sem hann sinnti embætti forseta. Forseti Alþýðusambands Íslands 2022–2023. Í stjórn Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, varamaður 2015–2017, aðalmaður 2017–2023. Í stjórn Rafmenntar ehf. síðan 2023. Í rekstrarstjórn Listasafns ASÍ 2013–2018. Í stjórn SAMAK 2018–2025. Í hagsmunaráði Landsnets 2018–2025. Formaður Verkalýðsmálaráðs Samfylkingarinnar 2022.

Í stjórn Norænna samtaka rafiðnaðarsambanda síðan 2011. Formaður stjórnar Norrænna samtaka rafiðnaðarsambanda 2014–2016. Í stjórn Norrænna byggingamannasamtaka og evrópskra byggingamannasamtaka til skiptis á árunum 2012–2024. Forseti NFS, heildarsamtaka launafólks á Norðurlöndum, 2023.

Alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður síðan 2024 (Samfylkingin).

Atvinnuveganefnd 2025–, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kosninga 2025, velferðarnefnd 2025–.

Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES 2025–, þingmannanefnd Íslands og ESB 2025–.

Hefur skrifað fjölda greina sem hafa birst á vef Rafiðnaðarsambands Íslands og Alþýðusambands Íslands. Auk þess greinar á ýmsum vefmiðlum.

Æviágripi síðast breytt 24. febrúar 2025.

Áskriftir