Árni Helgason

Árni Helgason
  • Kjördæmi: Suðvesturkjördæmi
  • Þingflokkur: Sjálfstæðisflokkur

Þingseta

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan apríl 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis febrúar 2025, júlí 2025 og febrúar 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Æviágrip

Fæddur 25. júlí 1981 í Reykjavík. Foreldrar: Helgi Bernódusson, fæddur 1949, fv. skrifstofustjóri Alþingis og Gerður Guðmundsdóttir, fædd 1948, fv. menntaskólakennari. Maki: Sigríður Dögg Guðmundsdóttir, fædd 16. janúar 1981, forstöðumaður hjá Íslandsstofu. Börn: Auður Freyja (2008), Sólveig Katla (2013), Kári Hrafn (2017).

Stúdentspróf MR 2001. Nám við Friedrich Schiller University í Jena 2001–2002. Mag. jur. í lögfræði HÍ 2007. Réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi 2009, réttindi fyrir Landsrétti 2019. MBA HÍ 2026.

Blaðamaður á Morgunblaðinu á sumrin og meðfram námi 2003–2007. Framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2007–2009. Lögmaður á JÁS Lögmönnum 2009–2024. Rak eigin stofu 2024–2026.

Í Stúdentaráði HÍ 2004–2006, oddviti Vöku 2005–2006. Varaformaður Heimdallar 2006–2007, formaður Heimdallar 2009–2010. Í kærunefnd útlendingamála 2016–2020. Formaður þingmannanefndar um málefni útlendinga 2020–2021.

Alþingismaður Suðvesturkjördæmis síðan apríl 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Varaþingmaður Suðvesturkjördæmis febrúar 2025, júlí 2025 og febrúar 2026 (Sjálfstæðisflokkur).

Atvinnuveganefnd 2026–, velferðarnefnd 2026–, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2026.

Ritstjóri Lögmannablaðsins 2010–2012. Annar umsjónarmanna hlaðvarpsins Hismið 2013–2022. Pistlahöfundur um árabil á ýmsum miðlum, m.a. Fréttablaðinu. Höfundur skáldsögunnar Aftenging sem kom út hjá Bjarti Veröld 2025.

Æviágripi síðast breytt 16. september 2026.

Áskriftir