Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Þingseta
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2016–2017, Reykjavíkurkjördæmis suður 2017–2021 og Suðvesturkjördæmis 2021–2024 (Píratar).
Formaður þingflokks Pírata 2017–2019 og 2023–2024.
Æviágrip
Fædd á Akranesi 6. maí 1987. Foreldrar: Ævar Örn Jósepsson (fæddur 25. ágúst 1963) fréttamaður og rithöfundur og Sigrún Guðmundsdóttir (fædd 30. september 1964) umhverfis- og auðlindafræðingur.
Stúdentspróf FB 2007. LL.B-próf (alþjóða- og Evrópulög) frá Háskólanum í Groningen, Hollandi, 2012. LL.M-próf (mannréttindi og alþjóðlegur refsiréttur) frá Háskólanum í Utrecht, Hollandi, 2013.
Starfsnemi hjá Alþjóðlega stríðsglæpadómstólnum fyrir fyrrum Júgóslavíu 2014. Rannsóknarblaðamaður fyrir Kvennablaðið 2014–2016. Fræðiskrif fyrir Snarrótina, samtök um borgaraleg réttindi, 2015–2016. Fræðiskrif fyrir landssamtökin Geðhjálp frá 2016.
Formaður Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK 2014–2016. Alþjóðafulltrúi og átti sæti í framkvæmdaráði Pírata 2015–2016. Í úrskurðarnefnd Pírata 2016. Gjaldkeri Jæja lýðræðissamtaka 2016. Formaður Pírata 2016–2017.
Alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2016–2017, Reykjavíkurkjördæmis suður 2017–2021 og Suðvesturkjördæmis 2021–2024 (Píratar).
Formaður þingflokks Pírata 2017–2019 og 2023–2024.
Allsherjar- og menntamálanefnd 2017, 2017–2018, 2019 og 2020–2021, atvinnuveganefnd 2018–2019 og 2020, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 2019–2020 (formaður 2019–2020), efnahags- og viðskiptanefnd 2021–2024.
Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins 2017 (formaður 2017), 2017–2021 og 2021–2024.
Æviágripi síðast breytt 6. janúar 2025.
Æviágrip þingmanna eru almennt ekki uppfærð eftir að þingsetu lýkur, nema leiðrétta þurfi augljósar villur.