villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/131/fun002.html Alþingi

2. fundur

mánudaginn 4. október 2004

kl. 7.50 síðdegis.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hafði 20 mín. til framsögu en ræðumenn annarra þingflokka 12 mín. í fyrstu umferð, í annarri umferð 6 mín. en í þeirri þriðju 5 mín. hver þingflokkur.

Röð flokkanna var þessi: Framsóknarflokkur, Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, í annarri Jónína Bjartmarz, 6. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Magnús Stefánsson, 3. þm. Norðvest.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 1. þm. Reykv. n., Jóhanna Sigurðardóttir, 2. þm. Reykv. s., í annarri og Björgvin G. Sigurðsson, 7. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson utanríkisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður A. Þórðardóttir, umhverfisráðherra, í annarri umferð og Birgir Ármannsson 11. þm. Reykv. s., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 5. þm. Norðaust., í fyrstu umferð, í annarri Kolbrún Halldórsdóttir, 8. þm. Reykv. n. og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 8. þm. Norðvest.

Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu í fyrstu umferð Guðjón A. Kristjánsson, 5. þm. Norðvest., og Sigurjón Þórðarson, 10. þm. Norðvest., í annarri umferð Gunnar Örlygsson 10. þm. Suðvest., en í þriðju umferð Magnús Þór Hafsteinsson, 9. þm. Suðurk.

[22:03]
Útbýting þingskjala


Fundi slitið kl. 22:08.