villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/140/fun108.html Alþingi

108. fundur

þriðjudaginn 29. maí 2012

kl. 7.50 síðdegis.

almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir, og hafði hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur í síðustu umferð. Þingmenn utan flokka töluðu síðastir í hverri umferð og höfðu 4 mínútur.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð og Hreyfingin.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Sjálfstæðisflokk töluðu í fyrstu umferð Ólöf Nordal, 2. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Ragnheiður Ríkharðsdóttir, 8. þm. Suðvesturkjördæmis, en í þeirri þriðju Jón Gunnarsson, 12. þm. Suðvesturkjördæmis.

Ræðumenn Samfylkingarinnar voru: Magnús Orri Schram, 7. þm. Suðvesturkjördæmis, í fyrstu umferð, Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra, í annarri, en í þriðju umferð Skúli Helgason, 7. þm. Reykjavíkurkjördæmi suður.

Fyrir Framsóknarflokk töluðu Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Birkir Jón Jónsson, 2. þm. Norðausturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Siv Friðleifsdóttir, 6. þm. Suðvesturkjördæmis.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð töluðu í fyrstu umferð Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, en Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, í þriðju umferð.

Fyrir Hreyfinguna talaði í fyrstu umferð Birgitta Jónsdóttir, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri umferð talaði Margrét Tryggvadóttir, 10. þm. Suðurkjördæmis, og Þór Saari, 9. þm. Suðvesturkjördæmis í þeirri þriðju.

Ræðumenn utan flokka voru: Lilja Mósesdóttir, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, talaði síðust í fyrstu umferð, Guðmundur Steingrímsson, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, talaði síðastur í annarri umferð og Atli Gíslason, 4. þm. Suðurkjördæmis, talaði síðastur í þriðju umferð.

[21:58]
Útbýting þingskjala


Fundi slitið kl. 22:00.