107. fundur
föstudaginn 15. maí 2015
kl. 10.30 árdegis.
óundirbúinn fyrirspurnatími.
stuðningskerfi til að auðvelda för hreyfihamlaðs fólks.
Spyrjandi var Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.
um fundarstjórn.
ummæli forsætisráðherra um rammaáætlun.
Málshefjandi var Katrín Júlíusdóttir.
kosning þriggja manna og jafnmargra varamanna í stjórn Viðlagatryggingar Íslands til fjögurra ára, skv. 2. gr. laga nr. 55 2. júní 1992, um Viðlagatryggingu Íslands, með síðari breytingum.
Við kosninguna komu fram tveir listar með samtals jafn mörgum nöfnum og menn skyldi kjósa. Kosningin fór því fram án atkvæðagreiðslu og varð stjórnin svo skipuð:
Aðalmenn:
Adolf Guðmundsson (A),
Lína Tryggvadóttir (B),
Ragnar Þorgeirsson (A).
Varamenn:
Andri Teitsson (A),
Steinar Harðarson (B),
Silja Dögg Gunnarsdóttir (A).
[Fundarhlé — 12:26]
áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frh. síðari umræðu.
stjtill., 244. mál (Hvammsvirkjun). — Þskj. 273, nál. m. brtt. 1180, nál. 1247 og 1248.
[17:35]
Útbýting þingskjala
Umræðu frestað.
Út af dagskrá voru tekin 4.–5. mál.