villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/144/fun143.html Alþingi

143. fundur

miðvikudaginn 1. júlí 2015

kl. 7.50 síðdegis.

almennar stjórnmálaumræður.

Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur 10 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri og 6 mínútur síðustu umferð.

Röð flokkanna var þessi í öllum umferðum: Samfylkingin, Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Framsóknarflokkur, Björt framtíð og Píratar.

Ræðumenn flokkanna voru: Fyrir Samfylkinguna töluðu Helgi Hjörvar, 9. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, í annarri Oddný G. Harðardóttir, 6. þm. Suðurkjördæmis, og í þeirri þriðju Valgerður Bjarnadóttir, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Sjálfstæðisflokksins voru Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í fyrstu umferð, Unnur Brá Konráðsdóttir, 4. þm. Suðurkjördæmis, í annarri umferð, en í þriðju umferð Brynjar Níelsson, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð töluðu Svandís Svavarsdóttir, 5. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í fyrstu umferð, Lilja Rafney Magnúsdóttir, 8. þm. Norðvesturkjördæmis, í annarri en í þriðju umferð Andrés Ingi Jónsson, 8. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður.

Ræðumenn Framsóknarflokksins voru í fyrstu umferð Þórunn Egilsdóttir, 8. þm. Norðausturkjördæmis, Willum Þór Þórsson, 5. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri og Silja Dögg Gunnarsdóttir, 3. þm. Suðurkjördæmis, í þriðju umferð.

Fyrir Bjarta framtíð töluðu í fyrstu umferð Róbert Marshall, 6. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður, í annarri Brynhildur Pétursdóttir, 10. þm. Norðausturkjördæmis, en í þriðju umferð Óttarr Proppé, 11. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.

Ræðumenn Pírata voru Helgi Hrafn Gunnarsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis norður, í fyrstu umferð, Birgitta Jónsdóttir, 12. þm. Suðvesturkjördæmis, í annarri, en í þriðju umferð Jón Þór Ólafsson, 10. þm. Reykjavíkurkjördæmis suður.


[22:09]
Útbýting þingskjala

Fundi slitið kl. 22:09.