86. fundur
fimmtudaginn 26. mars 2015
kl. 10.30 árdegis.
tilkynning um skrifleg svör.
Forseti tilkynnti að svör við fyrirspurnum á þskj. 959 og 1028 mundu dragast.
óundirbúinn fyrirspurnatími.
kosning aðalmanns í bankaráð Seðlabanka Íslands í stað Ólafar Nordal til fyrsta þings eftir næstu almennar alþingiskosningar, skv. 26. gr. laga nr. 36/2001, um Seðlabanka Íslands.
Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosin væri án atkvæðagreiðslu:
Þórunn Guðmundsdóttir hæstaréttarlögmaður.
alþjóðleg öryggismál o.fl., 1. umræða.
stjfrv., 628. mál (erlend herskip og herloftför o.fl., breyting ýmissa laga). — Þskj. 1084.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og utanrmn.
ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 269/2014 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn, fyrri umræða.
stjtill., 608. mál (markaðssetning og notkun forefna sprengiefna, EES-reglur). — Þskj. 1052.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu.
[Fundarhlé — 12:53]
[13:30]
Útbýting þingskjala
samningur milli Íslands og Færeyja um fiskveiðar innan íslenskrar og færeyskrar lögsögu 2015, fyrri umræða.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og utanrmn.
samningur milli Grænlands og Íslands um stjórnun rækjuveiða á Dohrnbanka, fyrri umræða.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og utanrmn.
ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 29/2015 um breytingu á XVII. viðauka við EES-samninginn, fyrri umræða.
stjtill., 632. mál (hugverkaréttindi, EES-reglur). — Þskj. 1088.
Umræðu lokið.
Tillagan gengur til síðari umræðu og utanrmn.
[13:37]
Útbýting þingskjala
Út af dagskrá var tekið 5. mál.