9. fundur
mánudaginn 22. september 2014
kl. 3 síðdegis.
varamenn taka þingsæti
Forseti tilkynnti að Hjálmar Borgi Hafliðason tæki sæti Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, 1. þm. Norðaust., Jón Árnason tæki sæti Gunnars Braga Sveinssonar, 1. þm. Norðvest., og Halldóra Mogensen tæki sæti Helga Hrafns Gunnarssonar, 10. þm. Reykv. n.
Jón Árnason, 1. þm. Norðvest., og Halldóra Mogensen, 10. þm. Reykv. n., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.
mannabreytingar í nefndum.
Forseti kynnti eftirfarandi breytingar í nefndum þingsins:
Unnur Brá Konráðsdóttir tekur sæti Ragnheiðar Ríkharðsdóttur sem aðalmaður í efnahags- og viðskiptanefnd.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Brynjar Níelsson taka sæti Unnar Brár Konráðsdóttur og Elínar Hirst sem aðalmenn í velferðarnefnd.
Elín Hirst tekur sæti Brynjars Níelssonar sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd.
tilkynning um skrifleg svör.
Forseti tilkynnti að svör við fyrirspurnum á þskj. 62 og 64 mundu dragast.
[15:05]
Útbýting þingskjala
óundirbúinn fyrirspurnatími.
eignarhald Íbúðalánasjóðs á íbúðum á Suðurnesjum.
Spyrjandi var Oddný G. Harðardóttir.
[16:20]
Útbýting þingskjala
nauðungarsala, frh. 2. umræðu.
stjfrv., 7. mál (frestun nauðungarsölu). — Þskj. 7, nál. 110, brtt. 111.
Frumvarpið gengur til 3. umræðu.
Út af dagskrá voru tekin 4.–6. mál.