40. fundur
mánudaginn 19. mars 2018
kl. 3 síðdegis.
minnst látinna fyrrverandi alþingismanna, Sverris Hermannssonar og Guðjóns Arnars Kristjánssonar.
Forseti minntist Sverris Hermannssonar, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra, sem lést 12. mars sl., og Guðjóns Arnars Kristjánssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 17. mars sl.
rannsókn kjörbréfs.
Forseti tilkynnti að Jónína Björg Magnúsdóttir tæki sæti Guðjóns S. Brjánssonar, 6. þm. Norðvest. Kjörbréf Jónínu Bjargar Magnúsdóttur var samþykkt.
varamenn taka þingsæti.
Forseti tilkynnti að Álfheiður Eymarsdóttir tæki sæti Smára McCarthys, 10. þm. Suðurk., og Pawel Bartoszek tæki sæti Hönnu Katrínar Friðriksson, 7. þm. Reykv. n.
Jónína Björg Magnúsdóttir, 6. þm. Norðvest., og Álfheiður Eymarsdóttir, 10. þm. Suðurk., undirrituðu drengskaparheit að stjórnarskránni.
Frestun á skriflegum svörum.
rekstur háskóla, 139. mál. — Þskj. 211.
innflæði erlends áhættufjármagns, 232. mál. — Þskj. 328.
kostnaður við heilbrigðisþjónustu fyrir erlenda ferðamenn, 189. mál. — Þskj. 263.
Sala fullnustueigna Íbúðalánasjóðs, 218. mál. — Þskj. 305.
framboð á félagslegu húsnæði, 205. mál. — Þskj. 288.
matvælaframleiðsla á Íslandi, 240. mál. — Þskj. 336.
herstöðvarrústir á Straumnesfjalli, 217. mál. — Þskj. 304.
innflutningur á hráum og ógerilsneyddum matvælum, 163. mál. — Þskj. 237.
tilkynning um fjármálaáætlun.
Forseti tilkynnti að ekki yrði unnt að leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrr en 4. apríl nk.
[15:17]
Útbýting þingskjala
óundirbúinn fyrirspurnatími.
um fundarstjórn.
frestun á framlagningu fjármálaáætlunar.
Málshefjandi var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.
um fundarstjórn.
framlagning fjármálaáætlunar.
Málshefjandi var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Umræðu lokið.
Umræðu lokið.
[18:18]
Útbýting þingskjala
Út af dagskrá var tekið 6. mál.