36. fundur
miðvikudaginn 27. nóvember 2019
kl. 3 síðdegis.
varamenn taka þingsæti
Forseti tilkynnti að Una Hildardóttir tæki sæti Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur, 3. þm. Suðvest.
úrsögn úr þingflokki.
Forseti las bréf frá Andrési Inga Jónssyni, 9. þm. Reykv. n., þar sem hann segir sig úr þingflokki Vinstrihreyfingarinnar -- græns framboðs.
kosning þriggja manna og jafnmargra varamanna í rannsóknarnefnd almannavarna til fimm ára, að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 30. gr. laga nr. 82 12. júní 2008 um almannavarnir.
Við kosninguna komu fram tveir listar með samtals jafn mörgum nöfnum og menn skyldi kjósa. Þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosin væru án atkvæðagreiðslu:
Aðalmenn:
Herdís Sigurjónsdóttir (A),
Soffía Sigurðardóttir (B),
Garðar Mýrdal (A).
Varamenn:
Haraldur Einarsson (A),
Eiríkur Rafn Rafnsson (B),
Ásta Þorleifsdóttir (A).
fjárlög 2020, frh. 3. umræðu.
stjfrv., 1. mál. — Þskj. 492, nál. 537, 541, 542 og 550, breytingartillaga 538, 539, 540, 548, 549, 551, 552, 553 og 554.
Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 561).
um fundarstjórn.
orð samgönguráðherra um stjórnarandstöðuna.
Málshefjandi var Logi Einarsson.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og velfn.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og atvinnuvn.
viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi, 1. umræða.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allsh.- og menntmn.
Út af dagskrá var tekið 2. mál.