91. fundur
mánudaginn 20. apríl 2020
kl. 3 síðdegis.
Frestun á skriflegum svörum.
aðgerðaáætlun byggðaáætlunar, 677. mál. — Þskj. 1142.
nefndir, starfs- og stýrihópar, 499. mál. — Þskj. 788.
birting alþjóðasamninga, 477. mál. — Þskj. 710.
[15:00]
Útbýting þingskjala
óundirbúinn fyrirspurnatími.
um fundarstjórn.
beiðni um að ráðherra mæti fyrir nefnd.
Málshefjandi var Jón Þór Ólafsson.
kosning níu manna og jafnmargra varamanna í stjórn Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, til eins árs að viðhafðri hlutfallskosningu, skv. 9. gr. laga nr. 23/2013, um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu.
Við kosninguna komu fram tveir listar með samtals jafn mörgum nöfnum og menn skyldi kjósa. Kosningin fór því fram án atkvæðagreiðslu og varð stjórnin svo skipuð:
Aðalmenn:
Ragnheiður Ríkharðsdóttir (A),
Mörður Árnason (B),
Jón Ólafsson (A),
Guðlaugur G. Sverrisson (B),
Brynjólfur Stefánsson (A),
Lára Hanna Einarsdóttir (B),
Elísabet Indra Ragnarsdóttir (A),
Björn Gunnar Ólafsson (B),
Jóhanna Hreiðarsdóttir (A).
Varamenn:
Jón Jónsson (A),
Margrét Tryggvadóttir (B),
Bragi Guðmundsson (A),
Sigríður Valdís Bergvinsdóttir (B),
Sjöfn Þórðardóttir (A),
Mörður Áslaugarson (B),
Marta Guðrún Jóhannesdóttir (A),
Kolfinna Tómasdóttir (B),
Jónas Skúlason (A).
breyting á ýmsum lögum vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, 1. umræða.
stjfrv., 722. mál (meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum o.fl.). — Þskj. 1250.
Umræðu lokið.
Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allsh.- og menntmn.
[17:24]
Útbýting þingskjala