79. fundur
mánudaginn 13. mars 2023
kl. 3 síðdegis.
varamenn taka þingsæti
Forseti tilkynnti að Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir tæki sæti Jóhanns Friðriks Friðrikssonar, 5. þm. Suðurk., Eva Sjöfn Helgadóttir tæki sæti Gísla Rafns Ólafssonar, 13. þm. Suðvest. og að Sigurjón Þórðarson tæki sæti Eyjólfs Ármannssonar, 6. þm. Norðvest.
staðfesting kosningar.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd staðfesti kosningu Sigurjóns Þórðarsonar.
[15:04]
Útbýting þingskjala
um fundarstjórn.
greinargerð um sölu Lindarhvols.
Málshefjandi var Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.
Óundirbúinn fyrirspurnatími.
aðgerðir varðandi orkuöflun og orkuskipti.
Spyrjandi var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
kostnaður við lögfræðiráðgjöf vegna sölu ríkiseigna.
Spyrjandi var Björn Leví Gunnarsson.
um fundarstjórn.
orð ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Málshefjandi var Andrés Ingi Jónsson.
sérstök umræða.
Björgunargeta Landhelgisgæslunnar.
Málshefjandi var Andrés Ingi Jónsson.
útlendingar, 3. umræða.
stjfrv., 382. mál (alþjóðleg vernd). — Þskj. 1112, nál. m. brtt. 1274, nál. 1291, breytingartillaga 1292 og 1293.
Umræðu frestað.
[19:58]
Útbýting þingskjala