22. fundur
mánudaginn 6. nóvember 2023
kl. 3 síðdegis.
Minnst látins fyrrverandi alþingismanns, Bjarna Guðnasonar.
Forseti minntist Bjarna Guðnasonar, fyrrverandi alþingismanns, sem lést 27. október sl.
[Fundarhlé — 15:04]
varamenn taka þingsæti.
Forseti tilkynnti að Björgvin Jóhannesson tæki sæti Vilhjálms Árnasonar, 4. þm. Suðurk., Sigurður Tyrfingsson tæki sæti Guðmundar Inga Kristinssonar, 4. þm. Suðuvest., Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir tæki sæti Hafdísar Hrannar Hafsteinsdóttur, 7. þm. Suðurk., Halldór Auðar Svansson tæki sæti Björns Levís Gunnarssonar, 6. þm. Reykv. s., og að Daði Már Kristófersson tæki sæti Hönnu Katrínar Friðriksson, 8. þm. Reykv. s.
staðfesting kosningar.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd staðfesti kosningu Sigurðar Tyrfingssonar.
drengskaparheit.
Sigurður Tyrfingsson, 4. þm. Suðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.
Frestun á skriflegum svörum.
ákvörðun og framkvæmd þvingaðrar lyfjagjafar við brottvísanir, 214. mál. — Þskj. 217.
kaup á vopnum og varnarbúnaði í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins, 250. mál. — Þskj. 253.
fjórði orkupakkinn, 312. mál. — Þskj. 316.
virkjunarkostir, 319. mál. — Þskj. 323.
skaðleg innihaldsefni í papparörum, 324. mál. — Þskj. 328.
raforka og rafmyntagröftur, 326. mál. — Þskj. 331.
akstur um friðlönd, 344. mál. — Þskj. 351.
mönnunarvandi í leikskólum, 338. mál. — Þskj. 345.
atvinnuþátttaka eldra fólks, 318. mál. — Þskj. 322.
búsetuúrræði fatlaðs fólks, 320. mál. — Þskj. 324.
ferðakostnaður, 275. mál. — Þskj. 278.
[15:14]
Útbýting þingskjala
Óundirbúinn fyrirspurnatími.
bótagreiðslur til bænda vegna niðurskurðar búfjár.
Spyrjandi var Teitur Björn Einarsson.