villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/154/fun056.html Alþingi

56. fundur

mánudaginn 22. janúar 2024

kl. 3 síðdegis.

Framhaldsfundir Alþingis.

Forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir las forsetabréf um að Alþingi skyldi koma saman til framhaldsfunda 22. janúar 2024.


varamenn taka þingsæti.

Forseti tilkynnti að Magnús Árni Skjöld Magnússon tæki sæti Jóhanns Páls Jóhannssonar, 4. þm. Reykv. n.


breytingar á starfsáætlun.

Forseti kynnti breytingu á starfsáætlun Alþingis.


tilkynning um mannabreytingar í nefndum.

Forseti tilkynti að Berglind Ósk Guðmundsdóttir tæki sæti sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd í stað Birgis Þórarinssonar sem yrði varamaður í sömu nefnd. Jafnframt að Birgir Þórarinsson tæki sæti sem aðalmaður í atvinnuveganefnd í stað Berglindar Óskar Guðmundsdóttur en að hún tæki sæti varamanns í sömu nefnd. Einnig tilkynnti forseti að Dagbjört Hákonardóttir tæki sæti sem aðalmaður í Íslandsdeild ÖSE í stað Jóhanns Páls Jóhannssonar sem yrði varamaður í sömu nefnd.


endurskoðuð þingmálaskrá.

Forseti tilkynnti að endurskoðuð þingmálaskrá hefði verið lögð fram.


[15:09]
Útbýting þingskjala

Frestun á skriflegum svörum.

íslenskukennsla fyrir útlendinga, 260. mál. — Þskj. 263.

atvinnuþátttaka eldra fólks, 318. mál. — Þskj. 322.

búsetuúrræði fatlaðs fólks, 320. mál. — Þskj. 324.

endurskoðun á reglum um búningsaðstöðu og salerni, 532. mál. — Þskj. 617.

skráning brjóstapúða, 546. mál. — Þskj. 645.

breytingar á alþjóðaheilbrigðisreglugerðinni, 547. mál. — Þskj. 646.

verkefni á vegum Atlantshafsbandalagsins í Afganistan, 385. mál. — Þskj. 397.

undanþágur frá fjarskiptaleynd, 571. mál. — Þskj. 722.

starfsfólk starfsmannaleiga, 566. mál. — Þskj. 714.

endurnýting örmerkja, 586. mál. — Þskj. 834.


Málshefjandi var .

Umræðu lokið.


afturköllun vantrauststillögu.

Forseti tilkynnti að vantrauststillaga Flokks fólksins á hendur matvælaráðherra hefði verið dregin til baka.


Óundirbúinn fyrirspurnatími.

fjármögnun stuðnings við Grindvíkinga og mótvægisaðgerðir á húsnæðismarkaði.

[16:53]
Horfa

Spyrjandi var Kristrún Frostadóttir.


aðbúnaður og þjónusta við fólk með fötlun vegna ástandsins í Grindavík.

[17:00]
Horfa

Spyrjandi var Þórhildur Sunna Ævarsdóttir.


valdheimildir ríkissáttasemjara og kröfur aðila vinnumarkaðarins.

[17:07]
Horfa

Spyrjandi var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.


stefna ríkisstjórnarinnar í málum hælisleitenda.

[17:16]
Horfa

Spyrjandi var Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.


kjör íslenskra lífeyrisþega sem búsettir eru erlendis.

[17:23]
Horfa

Spyrjandi var Guðmundur Ingi Kristinsson.


mótvægisaðgerðir á húsnæðismarkaði vegna ástandsins í Grindavík.

[17:30]
Horfa

Spyrjandi var Berglind Ósk Guðmundsdóttir.



háskólar, 1. umræða.

stjfrv., 24. mál (örnám og prófgráður). — Þskj. 1299.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


endurnot opinberra upplýsinga, 1. umræða.

stjfrv., 35. mál (mjög verðmæt gagnasett, EES-reglur o.fl.). — Þskj. 1610.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


fullgilding fríverslunarsamnings milli EFTA-ríkjanna og Moldóvu, fyrri umræða.

stjtill., 558. mál. — Þskj. 691.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks fyrir árin 2024–2027, fyrri umræða.

stjtill., 584. mál. — Þskj. 813.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


[19:10]
Útbýting þingskjala

Fundi slitið kl. 19:13.