villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/155/fun017.html Alþingi

17. fundur

föstudaginn 1. nóvember 2024

kl. 10.30 árdegis.

varamenn taka þingsæti

Forseti tilkynnti að Sigþrúður Ármann tæki sæti Jóns Gunnarssonar, 2. þm. Suðvest.


innganga í þingflokk.

Forseti tilkynnti að borist hefði bréf þess efnis að Jakob Frímann Magnússon hefði gengið til liðs við þingflokk Miðflokksins.


Frestun á skriflegum svörum.

aðgerðir gegn ágengum framandi lífverum í höfnum, 269. mál. — Þskj. 274.

eftirlit með kjölfestuvatni, 270. mál. — Þskj. 275.

Umræðu lokið.


[10:35]
Útbýting þingskjala

afbrigði um dagskrármál.


Kosning eins aðalmanns í stað Helgu Láru Hauksdóttur og eins varamanns í stað Jóhannesar Tómassonar í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður, skv. 16. gr. laga nr. 112/2021, um kosningar.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að réttkjörin væru án atkvæðagreiðslu í yfirkjörstjórn Reykjavíkurkjördæmis suður:

 

Aðalmaður:

Sandra Hlíf Ocares.

 

Varamaður:

Ingvi Hrafn Óskarsson.


hækkun á kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, 1. umræða.

stjfrv., 35. mál. — Þskj. 35.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu og efh.- og viðskn.


Afurðasjóður Grindavíkurbæjar, 1. umræða.

stjfrv., 315. mál (framlenging). — Þskj. 324.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu og atvinnuvn.


vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, 1. umræða.

stjfrv., 316. mál (framlenging). — Þskj. 325.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu og allsh.- og menntmn.


Fundi slitið kl. 11:37.