villa -001 /www/butar.althingi.is/cache/altext/fundur/155/fun023.html Alþingi

23. fundur

fimmtudaginn 14. nóvember 2024

kl. 10.30 árdegis.

Kosning eins aðalmanns í stað Huldu Katrínar Stefánsdóttur og eins varamanns í stað Björns Þórs Jóhannessonar í landskjörstjórn, skv. 12. gr. laga nr. 112/2021, um kosningar.

Fram kom ein tilnefning og þar sem ekki voru fleiri tilnefndir en kjósa skyldi lýsti forseti yfir að kosin væru án atkvæðagreiðslu:

Aðalmaður:

Indriði Ingi Stefánsson.

Varamaður:

Hulda Katrín Stefánsdóttir.


staðfesting ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar um breytingar á IX. viðauka við EES-samninginn, síðari umræða.

stjtill. JFF o.fl., 326. mál (Fjármálaþjónusta o.fl.). — Þskj. 338.

Till. afgr. sem ályktun Alþingis (þskj. 366).


Afurðasjóður Grindavíkurbæjar, 3. umræða.

stjfrv., 315. mál (framlenging). — Þskj. 324.

Frv. afgr. sem lög frá Alþingi (þskj. 367).


stuðningslán til rekstraraðila í Grindavíkurbæ vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, 2. umræða.

stjfrv., 298. mál. — Þskj. 368, nál. m. brtt. 339.

Frumvarpið gengur til 3. umræðu.


brottfall laga um Bankasýslu ríkisins, 2. umræða.

stjfrv., 299. mál. — Þskj. 369, nál. m. brtt. 341.

Frumvarpið gengur til 3. umræðu.


fjáraukalög 2024, 2. umræða.

stjfrv., 297. mál. — Þskj. 344, breytingartillaga 345, 346 og 347, stöðuskjal 370.


útlendingar, 2. umræða.

stjfrv., 302. mál (sameiginleg vernd). — Þskj. 309, nál. 342.


afbrigði um dagskrármál.


tilhögun þingfundar .

Forseti gat þess að ekki væri gert ráð fyrir fleiri atkvæðagreiðslum á fundinum.


breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025, 2. umræða.

stjfrv., 2. mál. — Þskj. 2, nál. 360, breytingartillaga 364, 363, 361 og 362.

Umræðu frestað.


afbrigði um dagskrármál.


breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2025, frh. 2. umræðu.

stjfrv., 2. mál. — Þskj. 2, nál. 360, breytingartillaga 365, 364, 363, 361 og 362.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


skattar og gjöld, 2. umræða.

stjfrv., 300. mál (nýsköpun, virðisaukaskattur o.fl.). — Þskj. 307, nál. 356, breytingartillaga 357.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


kílómetragjald á ökutæki, 2. umræða.

stjfrv., 301. mál. — Þskj. 308, nál. 359.


Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga, 2. umræða.

stjfrv., 316. mál (framlenging). — Þskj. 325, nál. m. brtt. 358.

Umræðu (atkvæðagreiðslu) frestað.


Mannréttindastofnun Íslands, 1. umræða.

frv. BÁ, 327. mál (frestun gildistöku). — Þskj. 350.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu og stjórnsk.- og eftirln.


sértækur húsnæðisstuðningur vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ, 1. umræða.

frv. SÞÁ o.fl., 329. mál (framlenging). — Þskj. 353.

Umræðu lokið.

Frumvarpið gengur til 2. umræðu .


[Fundarhlé — 10:31]

[11:02]
Útbýting þingskjala

[Fundarhlé — 11:40]

Fundi slitið kl. 13:12.