[→]

ÞINGSETNINGARFUNDUR

þriðjudaginn 9. september 2025

kl. 2 miðdegis.

Árið 2025, þriðjudaginn 9. september, var hundrað fimmtugasta og sjöunda löggefandi Alþingi sett í Reykjavík. Er það hundrað og þrítugasta aðalþing í röðinni en hundrað sjötugasta og þriðja samkoma frá því er Alþingi var endurreist.

Þingmenn söfnuðust saman í Alþingishúsinu og gengu þaðan til guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 1.30. Biskup Íslands, séra Guðrún Karls Helgudóttir, þjónaði fyrir altari ásamt séra Sveini Valgeirssyni, sóknarpresti Dómkirkjunnar. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, prédikaði.

Að lokinni guðsþjónustu gengu þingmenn aftur til Alþingishússins, fundarsalar Alþingis.

Þessir menn skipuðu þingið:

 

  1. Alma D. Möller, 3. þm. Suðvest.
  2. Arna Lára Jónsdóttir, 3. þm. Norðvest.
  3. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, 9. þm. Suðurk.
  4. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, 3. þm. Reykv. s.
  5. Ásthildur Lóa Þórsdóttir, 1. þm. Suðurk.
  6. Bergþór Ólason, 4. þm. Suðvest.
  7. Bryndís Haraldsdóttir, 5. þm. Suðvest.
  8. Dagbjört Hákonardóttir, 8. þm. Reykv. n
  9. Dagur B. Eggertsson, 4. þm. Reykv. n.
  10. Diljá Mist Einarsdóttir, 7. þm. Reykv. n.
  11. Eiríkur Björn Björgvinsson, 10. þm. Suðvest.
  12. Eydís Ásbjörnsdóttir, 6. þm. Norðaust.
  13. Eyjólfur Ármannsson, 2. þm. Norðvest.
  14. Grímur Grímsson, 10. þm. Reykv. n.
  15. Guðbrandur Einarsson, 6. þm. Suðurk.
  16. Guðlaugur Þór Þórðarson, 2. þm. Reykv. n.
  17. Guðmundur Ingi Kristinsson, 6. þm. Suðvest.
  18. Guðmundur Ari Sigurjónsson, 8. þm. Suðvest.
  19. Guðrún Hafsteinsdóttir, 2. þm. Suðurk.
  20. Halla Hrund Logadóttir, 5. þm. Suðurk.
  21. Hanna Katrín Friðriksson, 3. þm. Reykv. n.
  22. Hildur Sverrisdóttir, 8. þm. Reykv. s.
  23. Inga Sæland, 4. þm. Reykv. s.
  24. Ingibjörg Davíðsdóttir, 4. þm. Norðvest.
  25. Ingibjörg Isaksen, 5. þm. Norðaust.
  26. Ingvar Þóroddsson, 7. þm. Norðaust.
  27. Jens Garðar Helgason, 3. þm. Norðaust.
  28. Jóhann Páll Jóhannsson, 1. þm. Reykv. s.
  29. Jón Gnarr, 7. þm. Reykv. s.
  30. Jón Gunnarsson, 13. þm. Suðvest.
  31. Jón Pétur Zimsen, 11. þm. Reykv. s.
  32. Jónína Björk Óskarsdóttir, 14. þm. Suðvest.
  33. Karl Gauti Hjaltason, 4. þm. Suðurk.
  34. Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, 10. þm. Reykv. s.
  35. Kristján Þórður Snæbjarnarson, 9. þm. Reykv. s.
  36. Kristrún Frostadóttir, 1. þm. Reykv. n.
  37. Lilja Rafney Magnúsdóttir, 7. þm. Norðvest.
  38. Logi Einarsson, 1. þm. Norðaust.
  39. María Rut Kristinsdóttir, 6. þm. Norðvest.
  40. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, 12. þm. Suðvest.
  41. Njáll Trausti Friðbertsson, 9. þm. Norðaust.
  42. Ólafur Guðmundur Adolfsson, 1. þm. Norðvest.
  43. Pawel Bartoszek, 9. þm. Reykv. n.
  44. Ragna Sigurðardóttir, 5. þm. Reykv. s.
  45. Ragnar Þór Ingólfsson, 5. þm. Reykv. n.
  46. Rósa Guðbjartsdóttir, 9. þm. Suðvest.
  47. Sigmar Guðmundsson, 7. þm. Suðvest.
  48. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, 2. þm. Norðaust.
  49. Sigmundur Ernir Rúnarsson, 11. þm. Reykv. n.
  50. Sigríður Á. Andersen, 6. þm. Reykv. n.
  51. Sigurður Ingi Jóhannsson, 10. þm. Suðurk.
  52. Sigurður Helgi Pálmason, 7. þm. Suðurk.
  53. Sigurjón Þórðarson, 4. þm. Norðaust.
  54. Snorri Másson, 6. þm. Reykv. s.
  55. Stefán Vagn Stefánsson, 5. þm. Norðvest.
  56. Vilhjálmur Árnason, 8. þm. Suðurk.
  57. Víðir Reynisson, 3. þm. Suðurk.
  58. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, 2. þm. Reykv. s.
  59. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, 2. þm. Suðvest.
  60. Þorgrímur Sigmundsson, 8. þm. Norðaust.
  61. Þórarinn Ingi Pétursson, 10. þm. Norðaust.
  62. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, 1. þm. Suðvest.
  63. Þórunn Sveinbjarnardóttir, 11. þm. Suðvest.
  64.  

forseti Íslands setur þingið.

Þá er þingmenn höfðu skipað sér til sætis gekk forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, til ræðustóls og las forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman þriðjudaginn 9. september. Forseti lýsti yfir að Alþingi Íslendinga væri sett samkvæmt bréfi því sem hann hafði lesið. Forseti ávarpaði því næst alþingismenn. Við lok ávarpsins stóð þingheimur upp og forsætisráðherra, Kristrún Frostadóttir, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi." Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi. Kammerkórinn Huldur flutti Smávinir fagrir. Lag: Jón Nordal. Ljóð: Jónas Hallgrímsson.


ávarp forseta Alþingis.

Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, ávarpaði þingheim.


Fundi slitið kl. 14:31.